Orð dagsins að þessu sinni á enginn annar en tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Bubbi tjáir sig stuttlega á Twitter um mál íslensku stúlknanna sem hittu landsliðsmenn Englands á hótelherbergi á dögunum.
Óhætt er að segja að málið allt hafi valdið miklu fjaðrafoki en landsliðsmennirnir, Mason Greenwood og Phil Foden, voru sendir heim úr landsliðshópnum fyrir að brjóta sóttvarnarreglur. Sumir hafa viljað varpa sökinni á stúlkurnar á meðan aðrir koma þeim til varnar. Bubbi er í seinni hópnum og segir á Twitter:
„Ef ég á vera heiðarlegur þá skil ég vel ævintýraþrá unga fólksins – ungar stelpur, ungir strákar – lífið er æðislegt. Hver vill ekki fara á brúnina, upplifa spennu og hita? Þessar stelpur eru töffarar. Boltastrákar geta verið spennó. Áfram unga fólk, lifið lífinu.“