Orð dagsins að þessu sinni á foringi Sósíalista Gunnar Smári Egilsson. Tæpur mánuður er síðan Gunnar Smári lét orðin falla en það var í tilefni þess að þingmaður Sjálfstæðismanna, Ásmundur Friðriksson, hefði farið ísjálfskipaða sóttkví. Ásmundur er þekktastur fyrir það á sínum stjórnmálaferli að hafa kostað skattgreiðendur mest vegna aksturs.
Þess má geta að Ásmundur Friðriksson náði þeim merka áfanga við síðasta launaseðil að rjúfa 30 milljón króna múrinn. Hann er sá þingmaður sem hefur kostað skattgreiðendur mest vegna aksturs og eru endurgreiðslur til hans rétt yfir þessar þrjátíu milljónir.
Þegar Gunnar Smári hafði fregnir af því að Ásmundur hefði farið í sjálfskipaða sóttkví lét hann orð dagsins falla. Þar sagði Gunnar Smári:
„Alvarleg yfirsjón að setja þennan mann ekki strax í sóttkví. Maður sem keyrir 5000 kílómetra á dag og stoppar í hverri sjoppu, hverri jarðarför, hverju þorrablóti og hverjum kvennfélagsfundi gæti smitað stærri þjóð en Íslendinga ef hann fær á sig vírusinn.“
Hér fyrir neðan má svo sjá greiðslur sem Ásmundur hefur fengið og er þetta aðeins fyrir akstur síðustu árin.