Í Twitter færslu frá notanda að nafninu Arnar segir hann frá aðila sem virðist leika sér að því að eyðileggja fyrir öðrum íbúum byggingarinnar.
„Bjó á Suðurgötunni í Stúdentagörðunum. Er enn í fb grúbbunni og það er allt í steik þarna,“ segir hann á Twitter.
„Það er eh fáviti sem er að leika sér að því að eyðileggja fyrir öðrum og sameignir byggingarinnar.“
Arnar segir aðilann fyrst hafa staflað húsgögnum í lyftuna að nóttu til svo að íbúar gætu ekki notað lyftuna morguninn eftir.
„Ég ætlaði varla að trúa því sem að kom næst. Aðilinn tók risastórt grjót, setti í eina af fjórum sameignarþvottavélina og setti hana af stað. Hún er núna ónýt,“ segir Arnar.
Arnar segir aðilann ekki hafa hætt þar. „Hann tók allskyns heimilisáhöld og dagblöð, setti í aðra þvottavél með næstum heilum dunk af þvottaefni nokkrum dögum seinna og stíflaði hana.“
Aðilinn, sem enginn virðist vita hver er, hefur einnig til að mynda falið öll slökkvitæki í húsinu, að sögn Arnars.
„Ég vona innilega að FS gómi hann og sendi honum reikninginn fyrir fötunum og viðgerðunum. Þetta gæti hljóðað upp á mörg hundruð þúsundir,“ segir Arnar.
Sjá má Twitter þráð Arnars hér að neðan:
Bjó á Suðurgötunni í Stúdentagörðunum. Er enn í fb grúppunni og það er allt í steik þarna. Það er eh fáviti sem er að leika sér að því að eyðileggja fyrir öðrum og sameignir byggingarinnar. 1/?
— Arnar Liberalmálaráðherra (@arnar111) July 17, 2022