Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir að einhver óprúttinn aðili hafi þóst vera hann undir nafninu Ivedurgud á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Ingólfur hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu og átti hann til dæmis tvö af vinsælustu lögum sumarsins. Í færslu á Facebook-síðu sinni undirstrikar hann það að hann sé ekki umræddur notandi.
„Viðkomandi er búinn að senda skilaboð víða í mínu nafni, Eins er örugglega einhver búinn að vera að nota nafnið mitt á Tinder. Þið megið endilega gera report ef þið sjáið viðkomandi. Fleira var það ekki,“ segir Ingólfur í færslu sinni.
Það er einhver búinn að vera að þykjast vera ég á Snapchat undir nafninu IVedurgud. Viðkomandi er búinn að senda...
Posted by Ingólfur Þórarinsson on Miðvikudagur, 26. ágúst 2020