Opið til 22 í Ásmundarsal á Þorláksmessu: „Þetta rústaði svolítið jólunum í fyrra“

Heiða Magnús­dótt­ir, eigandi Ásmundarsalar, segir að Ásmundarsalarmálið sem kom upp á jólunum í fyrra hafi svolítið rústað jólunum það árið. Heiða ræddi um salinn og atvikið í fyrra við Kjarnann.

Eins og frægt er orðið stöðvaði lögregla sölusýningu í Ásmundarsal á Þorláksmessu í fyrra og lét það koma fram í dagbók lögreglu að „hæstvirtur ráðherra“ hefði verið á staðnum og annar hefði kallað lögreglumenn „nasista“. Kom svo í ljós að um var að ræða Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Heiða segir að það verði opið til kl. 22 í Ásmundarsal á Þorláksmessu næsta fimmtudag. Málið hafi verið allt hið leiðinlegasta.

„Þetta eitt það leið­in­leg­asta sem ég hef lent í, þetta rústaði svo­lítið jól­unum í fyrra, það verður bara að segj­ast eins og er,“ sagði hún.

„En eftir allan þennan tíma og allar þessar rann­sóknir og yfir­heyrslur sem fóru fram þá fáum við sekt fyrir það að við Sig­ur­björn vorum ekki með grím­ur. Það var eina brot­ið. Við máttum vera með opið og hér voru ekki of marg­ir. Fjöl­miðlar voru lítið að leggja áherslu á það þegar það loks­ins kom í ljós að það var ekki neitt brot framið annað en það að grímunotkun var ábóta­vant.“