Ómari brugðið þegar hann sá auglýsinguna í sjónvarpinu

Ómari Ragnarssyni, fjölmiðlamanni og þúsundþjalasmiði, þykir vænt um íslenska tungu. Hann gerir tungumálið reglulega að umtalsefni á bloggsíðu sinni og í gærkvöldi gerði hann auglýsingu sem hann sá í sjónvarpinu að umtalsefni.

„Nú köttum við allt niður!" „Nú köttum við allt niður!" „"Nú köttum við allt niður!"

„Svona hljóðar ein af nýjustu enskuskotnu auglýsingunni í sjónvarpinu, þar sem manni skilst að verið sé með ofangreindri upphrópun að lækka verð á vörum auglýsandans, sem virðist standa í þeirri trú, að eina leiðin til að koma skilaboðum til hugsanlegra kaupenda sé að forðast að nota jafn lítilfjörlegt tungumál og íslenskuna.“

Ómar hristir hausinn yfir þessu og segir að verið sé að reyna að „fókusera á að kópa við tjallendsið“ sem er orðalag sem var notað fyrr í vetur.

„Það orðalag var að vísu notað í beinni útsendingu, svo að RÚV, sem hefur þá höfuðskyldu að lðgum að vernda og hlúa að íslenskri tungu og menningu, kom engum vörnum við.“

Ómar segir að öðru máli gegnir um auglýsingar í „auglýsingaslottinu“ eins og það heitir nú orðið, þar sem lesinn texti fer um margar hendur á leið til útsendingar.

„Að ekki sé nú talað um að upphrópunin um "köttið" er þulin dag eftir dag. Í fréttum í kvöld var minnst á niðurskurð á fjárveitingu til vegar yfir Öxi, en næst verður kannski talað um "kött" á því "slotti" í fjárlögum, sem eyrnamerkt er þeirri vegagerð,“ sagði Ómar á bloggsíðu sinni í gærkvöldi.