Ómari barst óljós hótun þegar hann var yfirmaður fíknó – Svona afgreiddi hann málið

Ómar Smári Ármannsson, fyrrverandi yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að það sé ekkert nýtt að einhverjum detti eitthvað í hug sem gæti valdið öðrum hugarangri.

Ómar skrifar ádrepu á Facebook-síðu sína en ætla má að tilefnið sé fréttir af skipulagningu hryðjuverks hér á landi. Ómar segir sjálfur frá óljósri hótun sem honum barst á sínum tíma. Ómar segir svo frá því hvernig hann leysti málið og má segja að hann hafi gert það á nokkuð snyrtilegan hátt.

„Þegar ég var yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu barst mér t.d. spurn af óljósum hugleiðingum ungs aðila úti í bæ. Skv. þeim hafði sá áætlun að gera mér og mínum miska vegna rannsóknar máls, sem hann átti aðila að,“ segir Ómar.

Í stað þess að fara í húsleit og boða til blaðamannafundar bauð Ómar hlutaðeigandi í kaffi á lögreglustöðina daginn eftir. Þar lýsti Ómar yfir áhyggjum sínum af ætluðum áhuga mannsins.

„Í ljós kom að um misskilning var að ræða. Hann hafði verið að gorta sig við félaga sinn og sagt eitthvað í bríaríi, sem engin alvarleg meining hafi verið að baki. Ræddum saman um stund og kvöddumst sáttir. Viðkomandi leitaði síðar til mín vegna vandræða, sem hann rataði í vegna hótana annarra í hans garð. Afgreiddi málið skýrslulaust með sátt fyrir hans hönd. Þessi ungi drengur óx úr grasi og er í dag mætur borgari...“