„Þetta er einhver bannsett tíska sem snýst um útlitið en gerir notadrjúgan hlut að skaðræðisfyrirbæri,“ segir Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og þúsundþjalasmiður, í færslu á bloggsíðu sinni.
Ómar gerir þar frétt Morgunblaðsins um verstu hönnunarmistökin á baðherberginu að umtalsefni. Ómar segir að hönnunarmistökin sé að finna víðar en á baðherbergjum.
Í færslu sinni nefnir hann sérstaklega handföng á skúffum og skápahurðum sem víða má sjá í nýjum eða nýlegum byggingum. Segir Ómar engu líkara en að þau hafi verið sérstaklega gerð til að rífa föt á fólki og beinbrjóta það.
„Í stað þess að hafa handföngin eins og hálfa sporöskju í laginu, líkt og sýnt er á neðri myndinni, eru þau höfð þráðbein þannig að endar þeirra eru líkir hvössum oddum (efri myndin),“ segir Ómar sem birtir myndir máli sínu til stuðnings.
Ómar er ekki sáttur við þetta og segir að allt virðist þetta snúast um útlitið.
„Í hverri íbúð geta verið allt að 30 svona handföng, sem bíða eftir því að skemma föt og meiða og beinbrjóta fólk. Svona handföng skipta líklega milljónum hér á landi og milljörðum á heimsvísu. Dæmi er atvik fyrir nokkrum árum þegar kona handarbrotnaði við að klæða sig úr kjól og reka hönd í hankann, svo að handarbein brotnaði.“
Ómar gagnrýnir ekki bara handföngin á skúffum og skápum því hann segir að margir stólar og sófar séu illa hannaðir – að minnsta kosti með tilliti til þæginda.
„Síðan er það alveg saga sér á parti hvernig miskunnarlaust tískufyrirbrigði gerir venjulegu fólki ókleyft að sitja þægilega, en það er hvernig hönnun stóla og sófa er þannig, að á setunni er alltof langt frá frambrún inn að lóðrétta bakinu,“ segir Ómar og bætir við að þetta megi ekki vera meira en 50 sentímetrar.
„Því annars er engin leið að fá réttan stuðning frá baki stólsins eða sófans við mjóhrygg þess, sem situr. Ömurlegast er að sjá hve víða eru illa hannaðir og óþægilegir stólar á heilsugæslustofnunum.“