„Nú þarf að taka heldur betur til varnar dýrð og gefandi guðdómleika Kirkjufells í Grundarfirði í stað þess að þessi ferðamannastaður verði illræmdur um víða veröld,“ segir Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og þúsundþjalasmiður.
Ómar gerir tíð banaslys á Kirkjufelli á undanförnum árum að umtalsefni á bloggsíðu sinni. Erlendur ferðamaður lést á fjallinu á miðvikudag í síðustu viku og þá hafa fleiri látist þarna á undanförnum árum.
Morgunblaðið ræddi við JóhannesÞorvaldsson, einn af landeigendum við Kirkjufell, um helgina sem sagði:
„Við höfum miklar áhyggjur af þessu, og allir bæjarbúar, af því að okkur langar ekki í nýja Reynisfjöru hérna fyrir vestan,“ sagði hann. Kvaðst hann eiga von á því að allir landeigendur kæmu saman í nóvember til að ræða aðgerðir til að stemma stigu við tíðum slysum á þessu fallega kennileiti.
Ómar segir að nú þurfi snör handtök en segir viðbúið að það muni kosta fé og fyrirhöfn.
„En þá ber þess að gæta, að hvert mannslíf á jörðinni er einstakt undur - engin tvö eru eins,“ segir hann. Ómar segir enn fremur:
„Mikið er í húfi. Við Íslendingar, varðmenn einstæðrar náttúru landsins, verðum að setja í það vinnu, kraft og fé að koma í veg fyrir að harmsaga Kirkjufells verði lengri, heldur verði afstýrt öllum ferðum á fjallið og í staðinn valdir af kostgæfni bestu staðirnir í kringum það, þar sem fegurð þess og gildi verði í samræmi við nafn þess, sem vísar til trúar og tilbeiðslu.“