„Við Íslendingar upplifum nú þvílíka sprengingu í veldisvexti á flestum sviðum, að komið er út fyrir öll mörk,“ segir Ómar Ragnarsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og þúsundþjalasmiður, á bloggsíðu sinni.
Ómar gerir þar svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar vegna sjókvíaeldis að umtalsefni en í skýrslunni er að finna 23 ábendingar um úrbætur sem stofnunin telur að þurfi að gera á stjórnsýslu málaflokksins.
Ómar bendir á að fyrir um tíu árum hafi verið sett fram það takmark að tífalda framleiðslu í sjókvíaeldi næstu tíu ár. Þetta hafi gengið eftir og framleiðslan farið úr 4.000 tonnum í 45.000 tonn.
Nú má sjá í nýrri „kolsvartri“ skýrslu og með því að fletta til baka, hve harkalega hefur verið sprengt af stað með aldeilis dæmalausu offorsi, og skal engan undra, sem man eftir því þegar ráðherra kastaði sprengju inn í málið á upphafsstigi þess og leysti eftir ítrasta mætti úr öllum hömlum, sem gátu tafið fyrir græðgisvæðingu sjókvíaeldisins og innrás Norðmanna í þennan þátt sjávarútvegsins.“
Ómar segir að þetta leiði hugann að næsta tíu ára kafla sem felur í sér að tífalda vaxtarhraðann sem verið hefur – að á næstu árum verði vaxtarhraðinn hundraðfaldur miðað við byrjunina á þessum 20 ára sprengikafla.
„En svo deyfð er þjóðin fyrir þessu öllu, að hún kippir sér ekki upp við það hvernig gróðapungarnir eru að ganga af göflunum. Undanfarna daga hafa verið kynntar svipaðar sprengiáætlanir varðandi vindorkuver, og þegar það er talið saman, sem þegar er komið á blað um vindorkuver um allt land og á miðunum í kringum landið, eru menn að tala um alls meira en 30 þúsund megavött, eða tíföldun núverandi nýtingu stóriðjunýtingu á orkulindum landsins!“
Ómar endar pistilinn sinn á þessum orðum:
„Þegar þessi draumsýn hefur raungerst mun þjóðin framleiða innan við 5% af þeirri raforku, sem þarf fyrir íslensk fyrirtæki og heimili, en yfir 95 prósent fara til erlendra fyrirtækja.
Þeir sem dirfast að andmæla þessu brjálæði, eru sakaðir um að vera á móti rafmagni og atvinnuuppbyggingu og vilja fara aftur inn í torfkofana!“