Ómar Ragnarsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og þúsundþjalasmiður, segir að dæmi séu um að ökumenn leggi bifreiðum sínum frekar ólöglega en að leggja á löglegum en betri stað.
Ómar gerir þetta að umtalsefni á bloggsíðu sinni þar sem hann deilir frétt Morgunblaðsins. Í henni var greint frá því að algengt væri að sérstök hleðslustæði fyrir rafbíla væru misnotuð og notuð af ökumönnum ökutækja sem knúin eru af eldsneyti.
„Það nálgast að virðast þjóðaríþrótt að leggja bílum eins illa og mögulegt er. Til dæmis er það undra algengt að menn leggja undir tvö stæði samliggjandi stæði undir einn bíl,“ sagði Ómar í færslu sinni.
„Eitt sinn var sýnt á þessari síðu hvernig ófatlaðir lögðu frekar bíl sínum í stæði fyrir fatlaða fyrir framan bankaútibú þótt venjuleg stæði fyndust nær bankanum,“ segir Ómar og bætir við að við Kauptún sé algengt að nær allir bílarnir, sem standa á hleðslustæðum, séu alls ekki rafbílar.
Í frétt Morgunblaðsins kom fram að íbúar í Grafarvogi hafi tekið eftir því að bifreiðar séu ítrekað í hleðslustæðum Orku náttúrunnar í þjónustukjarnanum Spönginni. Ómar segir að þetta sé ekki eina dæmið um yfirgang sumra ökumanna.
„Einnig má iðulega sjá fullfrískt fólk nýta sér fatlaðramerki í glugga bíla og leggja þeim í stæði fyrir fatlaða, þótt hinn fatlaði sé alls ekki í bílnum.“