Ómar orð­laus yfir Ey­þóri Inga: Líkt við Villa Vill og Elton John – „Á heims­mæli­kvarða“

Ómar Ragnars­son, fjöl­miðla­maður og tón­listar­maður, er mikill að­dáandi Ey­þórs Inga Gunn­laugs­sonar og skildi nú engan undra.

Ómar segir að Ey­þór Ingi hafi um nokkurt skeið verið eitt best varð­veitta leyndar­málið í ís­lensku tón­listar­lífi en það sé engin á­stæða til að segja lengur slíkt. „Því að allir hafa vitað hvað í honum býr.“

Ómar skrifar á bloggi sínu um flutning Ey­þórs Inga á laginu Purp­le Rain sem Prince gerði ó­dauð­legt á sínum tíma. Ey­þór flutti lagið í beinni út­sendingu í stúdíói K100 á dögunum og er ó­hætt að segja að flutningurinn hafi verið vel heppnaður.

Ómar hrósar Ey­þóri í há­stert enda er hann þekktur fyrir marg­slungna hæfi­leika – kannski eins og Ómar sjálfur. Á sam­komum hafi hæfi­leikar hans gert hann að hálf­gerðum senu­þjófi á stundum.

Ómar minnist á það að í fyrra­haust hafi hann sýnt á sér nýja hlið „al­hliða tón­listar­manns“ þegar hann tók lagið „Er líða fer að jólum“. Tók hann lagið til með­ferðar frá A-Ö og gerði það á frá­bæran hátt eins og Ómar nefnir.

„Þau Sig­ríður Thor­la­cius og Sigurður Guð­munds­dóttir höfðu að vísu flutt þetta lag með dúett- út­setningu og gefið því nýtt og ferskt yfir­bragð á eftir­minni­legan hátt ári fyrr, svo að til­tæki Ey­þórs Inga virtist fyrir fram ekkert sér­lega frum­legt. En með­ferð hans á laginu í einu og öllu, sann­færði síðu­hafa um það, að hér væri kominn lista­maður með fá­gæta hæfi­leika, sem lofuðu góðu um fram­haldið, jafn­vel á heims­mæli­kvarða.“

Ómar segir að með flutningnum á Purp­le Rain, sem má sjá hér neðst, hafi ekki verið hikað við neitt.

„Það var allur pakkinn með eigin píanó­leik a la Elton John en í ofan­á­lag með Fred­dy Mercury-Villa Vill í­vafi, hvorki meira né minna,“ segir Ómar sem endar færsluna á ekki ama­legum með­mælum:
„Jafn ó­vænt og á­hrifa­mikið og ís­lenskt eld­gos á alveg nýjum stað.
Vaaá­á! Úff! Ís­lenskt eld­gos upp frá flyglinum!
Til hamingju, Ey­þór Ingi. Og þökk fyrir það að hafa í huga undan­farin ár að góðir hlutir gerast hægt þegar verið er að temja al­deilis ein­stæða hæfi­leika til þess að geta látið þá springa út á svona glæsi­legan hátt.“

Magnaðan flutning Ey­þórs má sjá hér.