Ómar R. Valdimarsson lögmaður segir það mannréttindi að fá að starfa við það sem þeir kjósa. Hávær umræða hefur vaknað eftir Kveiks-þátt gærkvöldsins um hvort Þórir Sæmundsson eigi að fá að starfa sem leikari eftir að hafa verið rekinn úr Þjóðleikhúsinu í kjölfar typpamyndasendinga.
Hulda Hrund Sigmundsdóttir hjá femínska aðgerðahópnum Öfgum, kominn á þetta í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun:
„Við fengum þessa spurningu mikið til dæmis í tengslum við KSÍ-málið; eiga þeir að fá að spila áfram eftir að þeir hafa brotið af sér. Ég get sagt það sama um Þórir, ef þú brýtur af þér þá missirðu ákveðin mannréttindi, að fá að vera í sviðsljósinu, það er gríðarlega erfitt fyrir þolendur að hafa þig alltaf í andlitinu á sér hvort sem það er í sjónvarpi eða leikhúsi eða annað. Vissulega á maðurinn rétt á atvinnu og það er spurning fyrir manneskju sem er reyndari á þessu sviði en ég og beina ætti þessari spurningu til Vinnumálastofnun,“ sagði hún.
Það væri til dæmis sjálfsagt að flugvirki sem væri uppvís um að nota aðstöðu sína til að smygla fíkniefnum myndi aldrei starfa aftur.
„Ef leikari, fótboltamaður eða einhver dáður og dýrkaður einstaklingur missir þessi forréttindi að vera í sviðsljósinu þá verður allt bananas.
Áhrifavaldurinn og fjármálafræðingurinn Edda Falak ítrekaði á Twitter skoðun sína að það væru ekki mannréttindi að starfa sem leikari.
Það eru ekki mannréttindi að vinna sem leikari. Það eru ekki mannréttindi að vinna sem leikari. Það eru ekki mannréttindi að vinna sem leikari. Það eru ekki mannréttindi að vinna sem leikari. Það eru ekki mannréttindi að vinna sem leikari.
— Edda Falak (@eddafalak) November 3, 2021
Því var Ómar ekki sammála og sagði:
Það er reyndar bara í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu, að öllum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. En auðvitað ræður þú þessu Edda!
— Ómar R. Valdimarsson (@orvlaw) November 3, 2021