Ómar lögmaður lét ummælin ekki hverfa – Skjáskot send á Lögmannafélagið

Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur ekki eytt tístum þar sem hann rífst við femínista og meðlimi samtakanna Öfga. Ómar hefur ekki verið reglulegur gestur á Twitter en þegar hann skráir sig inn varpar hann sprengjum og upp hefst hávær umræða. Til dæmis þegar hann svaraði áhrifavaldinum Eddu Falak sagði það mannréttindi að starfa sem leikari í tengslum við umræðuna um leikarann Þóri Sæmundsson sem hafði ekki fengið vinnu í fjögur ár eftir að upp komst um typpamyndasendingar.

Netverjinn Dísa María deildi svari Ómars á Twitter og hvatti fólk til að ráða ekki Ómar til starfa. Ómar tók það óstinnt upp.

Ekki löngu síðar birti aktívistinn Sæborg Ninja færslu um að hún væri búin að senda skjáskot til lögmannafélagsins:

„Í morgun sendi ég lögmannafélaginu vel valin skjáskot og hlekk á Twitter reikning ónefnds lögfræðings, sem er núna búinn að læsa aðgangnum.“ Ekki er vitað um aðra lögmenn sem hafa reitt aktívista til reiði í gær en það skal ekki útilokað.

Uppfært 11:45: Í fyrri útgáfu fréttar sagði að Ómar hefði lokað aðgangi sínum að Twitter, það er rangt og hefur verið lagfært.