Ómar lögmaður: „Bannað að segja að fitubollur séu feitar“

Innkoma Ómars R. Valdimarssonar á Twitter hefur valdið töluverðum titringi á forritinu. Tekur hann undir sjónarmið Jakobs Bjarnars Grétarssonar, blaðamanns Vísis, um að Twitter sé „holræsi internetsins“.

„Ég var nú bara að byrja að skoða Twitter í dag og finnst þetta vera eins og slök Morfís keppni með endalausum dyggðarskreyttum one-lænerum,“ segir hann.

Ómar hóf innreið sína á með því að segja Jakob að það væri „ákveðinn skellur“ að vera kallaður „tröll“ af Töru Margréti Vilhjálmsdóttur, baráttukonu gegn fitufordómum.

Tanja Ísfjörð, meðlimur hópsins Öfga, spyr hann:

„Ertu, ofan á allt saman, líka haldinn fitufordomum?“

Vísar hún þar í ýmis mál sem Ómar hefur tengst.

Ómar svarar að þetta hljóti að vera mikil uppgötvun:

„Hefur það aldrei hvarflað að þér að fyrir utan bergmálshellinn þinn væri fólk sem væri þér ekki sammála?“

Tanja hlær bara að honum og segir: „Ef þú heldur að líf mitt sé bergmálshellir þá skjátlast þér.“

Ómar segir svo:

„Það er bannað að efast um að þolendur segi alltaf 100% satt og bannað að segja að fitubollur séu feitar. En svo er 100% A.OK að gefa í skyn að allir sem eru 25 ára og eldri viti ekki neitt…“

Tanja svaraði honum svo í þremur liðum:

„Nr 1 þolendur eiga að njota vafans og tölfræðin styður þá skoðun mína.

Nr 2 þú kallar nafngreinda konu tröll og fitubollu. Hún er feit, hún er ekki tröll eða fitubolla.

Nr 3 ég er 26 ára.“

Tara segir einfaldlega: