Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og skemmtikraftur, er einn virkasti bloggari landsins og þar lætur hann ýmislegt flakka um málefni líðandi stundar og rifjar upp skemmtilegar sögur af löngum ferli.
Ómari gerði frétt mbl.is að umtalsefni í færslu um helgina en hún varðaði breska flugfélagið Ryanair sem lenti vél sinni á Lanzarote í staðinn fyrir Gran Canaria. Þetta kom sér illa fyrir farþega sem þurftu að koma sér sjálfir yfir til Gran Canaria.
Ómar rifjaði upp tvær áhugaverðar reynslusögur í tilefni af þessu og er yfirskrift pistilsins: Veit einhver hvar flugvöllurinn er og Er einhver með skrúfjárn og ljós?
„Ofangreindar spurningar eru tvær af mörgum, sem hrokkið hafa af vörum flugstjóra hér á landi. Sú fyrri hrökk af vörum flugmanns, sem var að fljúga með skemmtikrafta frá Reykjavík til Grundarfjarðar og var á hraðri ferð framhjá firðinum til vesturs. Síðuhafi tók þar með að sér að leiðbeina honum til baka á réttan stað,“ segir Ómar sem hefur flogið býsna lengi um loftin blá.
„Hitt atvikið gerðist á Reykjavíkurflugvelli þar sem farþegar í tíu sæta vél voru búnir að híma drjúga stund í myrkvaðri flugvél, sem ætlunin var að fljúga til Vestmannaeyja. Það var skítkalt í vélinni og veðrið leiðinlegt.
Loks var hurðinni á flugstjórnarklefanum hrundið upp og glytti á andlit skjálfandi flugstjórans sem spurði farþegana: „Er nokkurt ykkar með skrúfjárn eða vasaljós?“
Ómar segir að þessi spurning hafi komið flatt upp á farþega vélarinnar.
„Hafi farþegunum verið farið að lítast illa á blikuna fram að þessu, versnaði það um allan helming. Varla var hægt að hugsa sér meira ótraustvekjandi yfirlýsingu. Svo vildi til, að síðuhafi, sem var einn farþega, var alltaf með lítið verkfærasett meðferðis á ferðum sínum, og bjargaði málunum. En mikill léttir var það fyrir flesta í þessari flugferð, þegar lent var heilu höldnu í Eyjum.“