Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum, segir farir sínar ekki sléttar eftir harðan þriggja bíla árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í gær.
Í samtali við Fréttablaðið segist hann gáttaður á stefnu borgarinnar í umferðaröryggismálum.
Þannig er mál með vexti að á laugardag var Ómar á kynningu hjá Miðflokknum um umferðaröryggi sem haldinn var af Ólafi Guðmundssyni. Ómar segir að þar hafi Ólafur talað sérstaklega um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem Reykjavík fer með skipulagsvald á, en umrædd gatnamót eru með eina hæstu slysatíðnina á öllu landinu.
„Ólafur sagði að ráðamenn umferðarmála væru of værukærir í að fyrirbyggja slys í umferðinni, það væri hægt, en skortir vilja. Á kynningunni benti hann á að það væru allir í of mikilli hættu í umferðinni og bara spurning hver yrði næstur. Orðrétt sagði Ólafur á kynningunni: „Verður það ég, þú Ómar eða börnin okkar?“
Skemmst er frá því að segja að 24 klukkustundum síðar lenti Ómar í árekstri við þessi sömu gatnamót.
„Í gær, sunnudag um 24 tímum seinna erum við Laufey á leið í fermingarveislu í 101 og á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, hægir umferðin hratt á sér vegna ljósa. Ég hægi á mér en bílinn fyrir aftan kemur á fullum krafti aftan á okkur. Ákeyrslan leiðir til þriggja bíla áreksturs,“ hefur Fréttablaðið eftir Ómari.
Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.