Ómar hæðist að kommún­istum með brandara frá Badda Jún að Norðan

„Ronald Reagan Banda­ríkja­for­seti hafði yndi af bröndurum og safnaði þeim í sér­staka bók fyrir sig. Suma þeirra má sjá og heyra á Youtu­be,“ skrifar sjón­varps­maðurinn fyrr­verandi Ómar Ragnars­son ábloggi sínu í dag.

„Ein tegund brandaranna voru um sam­töl og saman­burð milli Banda­ríkja­manna og Rússa, sem voru auð­vitað allir á kostnað Rússa, en sumir þeirra sagðir gerðir af Rússum sjálfum til þess að draga úr döprum hugsunum þeirra vegna kúgunarinnar í gamla Sovétinu,“ skrifar Ómar.

„Þegar síðu­hafi frétti fyrst af Rússa­bröndurum Reagans rak hann í roga­stans, því að þarna voru aftur­gengnir brandarar sem Akur­eyrski grín­istinn, töfra­maðurinn og uppi­standarinn Björg­vin Júníus­son hafði farið með fyrir norðan á undan Reagan. Svona­lagað er svo­sem ekkert nýtt, því að ís­lensku Hafnar­fjarðar­brandararnir voru endur­gerðir danskir Ála­borgar­brandarar, sem aftur voru þar áður voru Pól­verja­brandarar,“ heldur Ómar á­fram.

„Hér er einn af Rússa­bröndurum Badda Jún, eins og hann var alltaf kallaður fyrir norðan.

KANINN:

Það er nú meira bullið hjá ykkur kommunum að halda því fram hvað þjóð­skipu­lagið ykkar sé gott.

RÚSSINN:

Þetta er al­rangt hjá þér. Við erum mun kristnari en þið, því að hugsunin í komúnunum í kristninni svín­virkar hjá okkur, en þið eruð svo miklir hræsnarar, að þið hugsið bara um eigið rass­gat.

KANINN: Ætlarðu að segja mér að ef þú ættir tvo bíla en ná­ungi þinn engan, þá myndir þú gefa náunga þínum annan bílinn þinn?

RÚSSINN: Já, ég myndi gera það.

KANINN:

Og ef þú ættir tvö sjón­varps­tæki, myndirðu gefa náunga þínum annað þeirra?

RÚSSINN:

Já, alveg eins og skot.

KANINN:

Og ef þú ættir tvo kæli­skápa og ná­ungi þinn engan, myndurðu gefa honum annan kælis­skápinn þinn?

RÚSSINN: Já, án þess að hugsa mig um.

KANINN: Og ef þú ættir tvær skyrtur en hann enga, mynd­rðu gefa honum aðra skyrtuna þína?

RÚSSINN: Nei, ég myndi ekki gera það.

KANINN: Af hverju ekki?

RÚSSINN: Ég á tvær skyrtur.“