Ómar birtir magnaða mynd sem hann tók í Grafar­vogi í dag

Ómar Ragnars­son, fjöl­miðla­maður og þúsund­þjala­smiður, birti magnaða ljós­mynd sem hann tók út um stofu­gluggann í Grafar­vogi í dag. Ómar birti myndina á blogg­síðu sinni og má sjá skjáskot af henni hér neðst.

„Í dag hefur verið sæmi­lega bjart veður en þó hefur verið snjó­mugga hér og þar. Út um stofu­gluggann við Spöngina á Borgar­holti hefur mátt sjá löngum skýja­bólstur yfir skýja­hulunni eftir Reykja­nes­skaganum, sem vegna þrá­kelkni sinnar þar er lík­legur til að vera gufu­bólstur, sem myndast við það að heitt loft streymir upp í kaldara loft og þéttist. Er þar með líkast til ein­hvers konar í­gildi gos­makkar frá gos­stöðinni í Geldingar­dölum,“ segir Ómar.

Eins og með­fylgjandi mynd ber með sér er um afar til­komu­mikla sjón að ræða, en á myndinni má sjá Keili bak við blokkir í Espi­gerði sem eru neðst á myndinni. Gufu- eða gos­bólsturinn rís svo upp hægra megin.

Ómar segir að þetta kallist á við fyrsta eld­gosið sem hann minnist, Heklu­gosinu 1947 að því leyti til að þá var hægt að fylgjast með gangi þess mikla goss í út­varpinu heima hjá sér.

„23 gosum seinna er síðan loks hægt að horfa á gos beint út um gluggann heima hjá sér og á sama tíma virða fyrir sér mann­lífið á verslunar­torginu í Spönginni, og raula hið dýr­lega rokk­lag um gluggann með textann færðan í stílinn, ein­hvern veginn svona:

GLUGGINN Í GOSINU.

Ég sit og gægist oft út um gluggann

á gosið þegar minnkandi´er muggann

og fólk á förnum vegi

fót­gangandi´á nóttu´og degi;

það er alveg til­valið að sjá¨!“