Ólöf Tara segir skýrsluna yfirhylmingu: „Brutu trúnað við okkur í Öfgum“- „Fokkið ykkur KSÍ & ÍSÍ“

Úttektarnefnd ÍSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að vitneskja hafi verið innan KSÍ um alls fjórar frásagnir um að leikmenn eða aðrir sem hafa starfað fyrir sambandið hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi á árunum 2010-2021.

Nefndina skipuðu Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, sem var jafnframt formaður nefndarinnar og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur.

Nefndin tók viðtöl við um 50 einstaklinga sem hafa tengst KSÍ frá árinu 2010 einnig rætt við tugi einstaklinga sem tengjast atburðarrásinni.

Var það meðal niðurstaðna nefndarinnar að upplýsingar sem þáverandi formaður KSÍ veitti fjölmiðlum og almenningi í ágúst síðastliðnum um vitneskju KSÍ af frásögunum um ofbeldismál hafi verið villandi, enda var formaðurinn á sama tíma með á borði tilkynningu frá starfsmanni KSÍ um alvarlegt kynferðisofbeldi gagnvart tengdadóttur starfsmannsins.

Í skýrslunni er einnig rætt um atvik frá árinu 2016 og er gerð athugasemd við Geir Þorsteinsson þá formann KSÍ og að hann hafi leitað til almannatengils. Um var að ræða atvik þar sem lögregla var kölluð til þegar grunur lék um heimilisofbeldi.

Ólöf Tara Harðardóttir er ein af meðlimum Öfga, hún segir á Twitter að skýrslan sé yfirhylming:

„Fokkið ykkur KSÍ & ÍSÍ. Þessi skýrsla er gaslýsing og yfirhalming af verstu sort. Þið standið ekki rassgat með þolendum,“ segir hún.

„KSÍ lak trúnaðargögnum í fjölmiðla. Stefndu þolendum í hættu til að bjarga eigin rassi. Brutu trúnað við okkur í Öfgum og þolendur sem treystu þeim eftir “við stöndum með þolendum” yfirlýsinguna sína. FOKKIÐ YKKUR ÖLL MEÐ TÖLU!“