Ólöf Tara hjólar í vararíkissaksóknara: „You can’t make this shit up!“

Ólöf Tara Harðardóttir, meðlimur aðgerðarhópsins Öfga, gagnrýnir harðlega að Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, skuli líka við færslur þar sem talað er gegn þolendum en hún greinir frá málinu á Twitter.

„Vararíkissaksóknari likear slúðurfrétt um þolanda ofbeldis,“ skrifar Ólöf í fyrstu færslunni um málið og vísar þar greinar á frettin.is, nýum miðli sem hefur sætt mikilli gagnrýni.

Þá bendir hún á að Helgi hafi einnig líkað við ummæli þar sem Stígamót og Þórhildur Gyða, sem steig nýverið fram og opnaði sig um ofbeldi af hálfu landsliðsmanns í fótbolta, eru sökuð um fjárkúgun.

„Vararíkissaksóknari neitar því að taka óþolendavæna afstöðu, kallar þessi like stuðning við tjáningarfrelsi,“ skrifar Ólöf síðan í dag en bætir þó við að Helgi hafi fjarlægt „like-in.“„Í hvaða heimi er samt eðlilegt að vararíkissaksóknari líki við athugasemd sem sakar eitt mikilvægasta þolendastarf landsins um lögbrot.“

Þá segist Ólöf að lokum vera með kenningu. „Hann er ekki ánægður með aðkomu stígamóta í máli 9 kvenna sem fóru með sín mál til mannréttinda dómstóla vegna vanhæfni íslenska ríkisins. Fyrir þá sem ekki vita, þà voru það auðvitað ofbeldismál.“