Ólöf Helga baunar á Sólveigu Önnu: „Fyrri stjórnendur brugðust skyldum sínum“

Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og frambjóðandi til formanns verkalýðsfélagsins, segir að fyrri stjórnendur hafi brugðist skyldum sínum og hennar listi sé lýðræðislegt mótsvar við því sem virkaði ekki hjá þeim. Engum dylst að í grein sinni á Vísi sé Ólöf Helga að tala um Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Viðar Þorsteinsson, en Sólveig ætlar sér endurkomu sem formaður í kosningunum síðar í þessum mánuði.

„Fyrir nokkrum mánuðum var mér sagt upp sem hlaðmanni við Reykjavíkurflugvöll fyrir að standa í réttindabaráttu sem trúnaðarmaður. Ég neitaði að hlýða yfirvaldinu og hef farið með málið alla leið í félagsdóm. Ég lagði allt í veðið og vil gera það áfram sem næsti formaður Eflingar,“ segir Ólöf Helga.

„Þegar að mér bauðst að verða varaformaður félagsins var það því formaður og framkvæmdastjóri höfðu sagt af sér og yfirgefið skipið sem þau höfðu sjálf siglt í ólgusjó.“

Allir hafi þá lagst á eitt til að halda starfseminni gangandi. Nú þurfi að hreyfa samfélagið í rétta átt með samstilltu átaki:

„Við náum hins vegar engu fram með innbyrðis átökum þar sem við setjum persónur ofar félagsmönnum.“

Hún segir að endurkoma Sólveigar Önnu muni einkennast af hörku og styrk. „Hún mun heimta virðingu og hlýðni. Eflingarlistinn varð til því að fyrri stjórnendur brugðust skyldum sínum, og uppbygging hans er mótsvar við því sem virkaði ekki hjá fyrirverum okkar. Listinn var lýðræðislega samstilltur, en fjölbreytni hans endurspeglar félagsmenn okkar sem koma úr ýmsum áttum. Sem formannsefni flokksins heimta ég ekki virðingu, heldur vil ég ávinna mér hana með baráttu minni.“