Borið hefur á því í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum að farið hafi verið inn í bílaleigubíla og greipar látnar sópa.
Í skeyti lögreglu kemur fram að dýrum tækjabúnaði hafi verið stolið úr bílunum, til dæmis myndavélum í framrúðu, vélartölvum, útvörpum og miðstöðvum. Þá eru dæmi um að ljósabúnaður hafi verið fjarlægður. Nú síðast um helgina var öllum fjórum hjólbörðunum stolið undan bílaleigubíl.
„Lögregla vill beina þeim tilmælum til forráðamanna bílaleiga að ganga vel og tryggilega frá bifreiðum sem eigu eða umsjá þeirra og geyma þær ekki á fáförnum stöðum,“ segir í skeyti lögreglu.