Óhætt er að segja að allskonar veður hafi gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu í morgun eins og meðfylgjandi myndband ber með sér. Hér að neðan má sjá hálftíma út um gluggann á myndbandi yfir smáíbúðahverfið sem búið er að stytta niður í 20 sekúndur.
Á þessum hálftíma gerði allskonar veður vart við sig: Snjór, rigning, slydda, þoka, sól og blíða.
Það er stundum sagt að á Íslandi sé allra veðra von og það átti svo sannarlega við í morgun.
Búast má við leiðinlegu veðri á vestanverðu landinu um helgina og eru gular og appelsínugular viðvaranir í gildi, til dæmis á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Þá má búast við því að það blási hressilega á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og í nótt.