„Öll mín mis­tök í lífinu hafa verið undir á­hrifum á­fengis“

Jónína Bene­dikts­dóttir segir öll sín mis­tök hafa verið undir á­hrifum á­fengis. Það hafi verið á­stæða þess að hún hafi hætt að drekka. Jónína opnaði sig í ein­lægu við­tali hjá Sigur­laugu M. Jónas­dóttur í út­varps­þættinum Segðu mér á Rás 2.

Jónína var 48 ára gömul þegar hún byrjaði að drekka á­fengi. „Þegar ég var í há­skóla var mikið um hass­reykingar og drykkju en ég smakkaði aldrei, ég var náttúru­lega í bahá'í-trúnni þar sem þetta var strang­lega bannað.“ Það var mikið um alkó­hól­isma í fjöl­skyldu hennar. Hún segir að afi hennar hafi verið mikill drykkju­maður sem fór illa með ömmu hennar. „Það er ekki fyrr en börnin mín fara að heiman og ég orðin ein, búin að lenda í ólgu­sjó, missa fyrir­tækið mitt í hendur ó­reiðu­manna, og allt tekið af mér, æran og mann­orðið, þá komst ég að því einn daginn að rauð­vín höfðaði vel til mín.“

Hún segir að hún hafi ekki upp­lifað að hún ætti við vanda­mál að stríða. „Gott fólk verður þessum djöfli að bráð og þetta er bara hreint hel­víti að verða fíkill,“ segir Jónína. Hún segist hafa á­kveðið að hætta eftir að hafa vaknað timbruð eftir rauð­víns­drykkju.

„En ég fer heim og er svo þreytt eftir vinnuna að ég á skilið eitt rauð­víns­glas. Svo er það lygin, þetta eina glas verður að tveimur, flösku og svo er komin belja. Það er svo auð­velt að fela drykkjuna með beljunni, þá sést ekki hvað þú ert búin að drekka mikið. Öll mín mis­tök í lífinu hafa verið undir á­hrifum á­fengis.“