Óhætt er að segja að frétt þess efnis að tvö börn af átta, sem útskrifuðust úr Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, hafi setið eftir og ekki fengið neina viðurkenningu á útskrift úr skólanum hafi vakið athygli.
DV fjallaði um málið í gærkvöldi og greindi frá því að sex börn hafi fengið viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur eða dugnað og eljusemi á meðan tvö börn fengu enga viðurkenningu.
DV ræddi við foreldra barnanna tveggja sem sátu eftir og lýstu þau mikilli óánægju sinni með málið.
„Þetta er með því ljótara sem ég hef séð og flokkast sem gróft ofbeldi. Ég væri alveg á sömu skoðun þó minn afleggjari hefði fengið þorrann af þessum verðlaunum. Þarna voru krakkar sem hafa lagt allan sinn metnað og styrk í að gera sitt allra besta. Þau þurftu að sitja ein eftir, horfa niður fyrir sig með krumpað bros og halda andliti þar til þau voru komin út í bíl,“ hefur DV eftir móður annars barnsins.
Fréttin hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum og gagnrýna margir forsvarsmenn skólans fyrir þessi vinnubrögð. Í þeim hópi er Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona og fyrrverandi skólameistari.
„Við grunnskólaútskrift er verðlaunum raðað á stærstan hluta hópsins en örfá börn sitja tómhent úti í sal með brotna sjálfsmynd og erfiðar tilfinningar í brjósti. Andlegt hópofbeldi í boði skólans. Hvernig er eiginlega komið fyrir uppeldisfræðinni og faglegri hugsun í skólakerfinu? Að annað eins og þetta skuli gerast í nafni grunnskólans er að mínu áliti falleinkunn fyrir viðkomandi skóla. Falleinkunn og ekkert annað,“ segir Ólína sem veltir fyrir sér hvernig eigi að vera hægt að vinna gegn einelti og útskúfun í skólum þegar sjálft fagfólkið skilur ekki betur en þetta birtingarmyndir félagslegs ofbeldis.
„Hitt er svo annað mál að tilhneigingin til að hrósa og hvetja getur hæglega orðið innihaldslaust skrum og jafnvel skaðlegt þegar "of mikið er gert af því góða" eins og máltækið segir. Það sannast hér,“ segir hún.
Illugi Jökulsson rithöfundur bregst einnig nokkuð hart við og segir á Facebook-síðu sinni: „Páll Sveinsson skólastjóri og allt hans starfsfólk ætti að skipta um starf. Ef ekkert þeirra hefur fattað fyrirfram hvað væri athugavert við þetta, þá eiga þau ekki að koma í mílufjarlægð frá börnum — hvað þá nær.“