Ólína vill ekki þvinga fólk í bólusetningu: „Við sem erum fullbólusett erum jafn þungur baggi“

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, ritar færslu á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hún gerir bólusetningar að umtalsefni sínu. Hún segir bólusetta einstaklinga alveg jafn mikla byrði á samfélaginu líkt og þeir sem ekki hafa þegið bólusetningu.

„Nú er hafin umræða um að lögskylda fólk í bólusetningu enda sé það svo "þungur baggi" á heilbrigðiskerfinu, eins og ég les í veffréttum dagsins. Þó segir í sömu fréttum að óbólusettir séu helmingur sýktra og helmingur alvarlega veikra. Ekki nema helmingur! Það þýðir að við sem erum fullbólusett erum jafn þungur baggi,“ segir Ólína

Hún heldur áfram: „Við erum jafn smitandi, veikjumst jafnoft og jafn mikið ef marka má fjölmiðla, og það þrátt fyrir fullyrðingar um að við veikjumst síður og minna, þá sýna tölur annað.“

Ólína segir bólusetningu veita takmarkaða vörn og vill því ekki þvinga fólk í að þiggja þær: „Í því ljósi finnst mér fráleitt að ætla að storka almennum mannréttindum eins og ákvarðanafrelsi með því að lögþvinga fólk í bólusetningu sem tölur sýna að er ekki nema takmörkuð vörn í þessum faraldri og leysir ekki af hólmi önnur sóttvarnarráð og reglur,“ segir Ólína.

Nokkur umræða hefur skapast undir færslu Ólínu. Þar segir Guðbjörg nokkur: „Helmingur af þeim 10 prósentum sem ekki eru bólusettir og helmingur af þeim 90 prósentum sem eru bólusettir. Svo þeir bólusettu veikjast mun ofar og meira..“

Ólína gleypir ekki svo glatt við því: „Það fær ekki staðist þegar helmingur innlagna eru bólusettir. Eða er það ekki þannig?“

Þá segir Vilhelm nokkur: „Auk þess er talið að óbólusettir smiti langtum meira en bólusettir. Þeir eru því eins konar tifandi tímasprengja í samfélaginu.“

Ólína svarar: „Það er mikil upplýsingaóreiða í öllu þessu máli, því bólusettir smitast jafn oft, fá þó margir vægari einkenni en smita samt. Óbólusettir væru engin tímasprengja ef bólusetningar væru að virka.“

Ljóst er að bólusetningar verða ræddar langt fram eftir næsta ári og eflaust lengur, miðað við þá þróun faraldursins.