Ólína undrandi eftir frétt Stöðvar 2: „Það þarf enginn að segja mér að þörf sé fyrir þetta“

Það vakti undrun margra þegar sagt var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að 180 vélbyssur væru í einkaeigu á landinu. Mikið hefur verið rætt um sjálfvirk skotvopn í Bandaríkjunum undanfarin ár vegna tíðra skotárása þar sem slíkum vopnum er beitt.

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, gerði fréttina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í dag og spurði: „Af hverju eru þessi vopn ekki einfaldlega bönnuð á Íslandi?“

Í fréttinni var bent á það að ekkert sjálfvirkt skotvopn hafi verið flutt inn til landsins árin 2016 og 2017. Árið 2018 hafi tvö slík vopn verið flutt inn og 19 árið 2019. Árið 2020 varð ákveðin sprenging þegar 252 sjálfvirk skotvopn voru flutt inn. Skýrist þessi mikla fjölgun af auknum áhuga safnara.

Ólína er þeirrar skoðunar – eins og vafalaust fleiri – að það sé fáránlegt að 180 sjálfvirk skotvopn skuli vera til í landinu.

„Fyrir fáum árum var ekkert slíkt vopn til staðar hér. Það þarf enginn að segja mér að "þörf" sé fyrir þetta, eða yfirleitt nokkur réttlæting á því. Við eigum að heita vopnlaus þjóð - verum það þá.“