Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður og doktor í íslenskum bókmenntum, gerir nýja stjórnarskrá og auðlindaatkvæðið umdeilda að umræðuefni í pistli á Facebook-síðu sinni. Hún deilir þar færslu Þórhildar Þorleifsdóttur, fyrrverandi stjórnlagaþingsmanni, sem skrifar um ummæli Kristrúnar Heimsdóttur, lögfræðings og stjórnarmanns í sjávarútvegsfyrirtækinu Brim, um stjórnarskrárfrumvarp stjórnlagaráðs.
„Afstaða hennar til stjórnarskrárfrumvarps stjórnlagaráðs kom mér ekki á óvart. Hún hefur verið mótfallin öllu þessu ferli og afraksturs þess frá upphafi og ég ætla ekki að fara í eithvað orðaskak við hana út af því,“ segir Þórhildur í færslunni.
„Alvarlegastar þykja mér þó þær aðdróttanir Kristrúnar að þessu lýðræðislega ferli - lögleysu, eins og hún kýs að kalla það - megi helst líkja við þau ósköp sem áttu sér stað í Bandaríkjunum í kringum forsetakosningarnar sl. haust, auk þess sem er víða að gerast í Evrópu. Þarna á hún greinilega við hægri öfgahreyfingar bæði austan hafs og vestan. Það eru mjög alvarlegar aðdróttanir að kenna stjórnarskráfrumvarpið við fasisma,“ skrifar Þórhildur.
Stjórnarskráin strandi á sjávarútveginum
Í færslu sinni segir Ólína að það sé ljóst að sjávarútvegsfyrirtækin viji ekki sjá auðlindaákvæði í nýrri stjórnarskrá. „Þau vilja eiga aðgang að þjóðarauðlindinni án þess að eignarréttur þjóðarinnar yfir henni sé staðfestur í stjórnarskrá. Um þetta stendur deilan um kvótakerfið og á þessu strandar allt stjórnarskrármálið,“ skrifar hún.
„Nú hefur Kristrún Heimisdóttir lögmaður og stjórnarmaður í Brimi, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, stigið fram á ritvölllinn þar sem hún finnur stjórnarskrármálinu flest til foráttu,“ segir Ólína.
„Ég leyfi mér af því tilefni að taka undir og deila færslu Þórhildar Þorleifsdóttur fyrrum stjórnlagaþingmanns þar sem hún bregst við þessum átektum Kristrúnar. Mér finnst rétt að minna á að stjórnlagaráð hafði fullt umboð til sinna starfa. Það var sett til verka af Alþingi Íslendinga að undangenginni kosningu meðal almennings um það hverjir myndu skipa ráðið. Það starfaði allan tímann í fullu umboði og skilaði síðan frumvarpi sínu til Alþingis sem hafði falið því verkið. Allt eins og vera ber og í fullu samræmi við þingsköp og landslög. Þingið hefur hins vegar ekki enn afgreitt frumvarpið, sem er ófyrirgefanlegt og sýnir betur en margt annað þau ógnartök sem sjávarútvegurinn hefur á íslenskum stjórnmálamönnum,“ skrifar Ólína að lokum.