Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir að Þorsteinn Már Baldvinsson hafi beitt sér fyrir því að hún fengi ekki stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Ólínu, Spegill fyrir skuggabaldur, en Kjarninn fjallar um einn kafla hennar á vef sínum í dag. Segir Ólína að góður vinur þeirra hjóna hafi hringt einn vetrarmorgun árið 2013, en sá var tengdur útgerð og sjávarútvegi.
„Honum var mikið niðri fyrir og taldi nú rétt að upplýsa okkur um nokkuð sem hann hefði fengið vitneskju um. Þessi kunningi okkar er hinn vandaðasti maður með hjartað á réttum stað og fleiprar ekki um hlutina. En nú var honum nóg boðið. Hann taldi sig vita með vissu að forstjóri Samherja hefði beinlínis komið í veg fyrir ráðningu mína sem forseta hug og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri skömmu áður. Þorsteinn Már Baldvinsson hefði einfaldlega hringt í háskólarektorinn og tilkynnt honum þegar ljóst var að ég væri í hópi umsækjenda, að „þessi kona ætti ekkert erindi norður yfir heiðar“.“
Ólína rifjar upp í bókinni að hún verið talsmaður breytinga á kvótakerfinu árið 2009 til 2013 þegar Samfylking og VG voru saman í ríkisstjórn. Telur hún að LÍÚ og Samherji hafi talið sig hafa ástæðu til að óttast málflutning hennar og áhrif þar að lútandi.
„Enda létu þeir óspart í ljósi andúð í minn garð og ugg gagnvart því sem ég hafði fram að færa í umræðunni. Dreift var rógburði gegnum ýmsa leigupenna, einkum á síðum Morgunblaðsins og vefmiðlinum AMX. Á fáeinum mánuðum taldi ég níu greinar í Morgunblaðinu, hvar af sex höfðu nafn mitt í fyrirsögnum eða fyrstu setningu.“
Nánar er fjallað um málið á vef Kjarnans.