Ólína sá Bjarna í Kastljósi í gærkvöldi: „Skýrasta dæmi um karlrembu sem ég hef séð í háa herrans tíð“

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, segir að svör Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um við spurningum um sölu á Íslandsbanka, sé skólabókardæmi um það sem átt er við með gaslýsingu.

Fréttakonan Sigríður Dögg Auðunsdóttir, sem jafnframt er formaður Blaðamannafélags Íslands, spurði Bjarna í Kastljósi í gærkvöldi út í Íslandsbankaútboðið sem hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu. Eins og kunnugt er tók faðir Bjarna þátt í útboðinu en sjálfur segist Bjarni ekki hafa haft hugmynd um þátttöku hans í því.

Ólína segir að Bjarni hafi gert tilraun til að niðra Sigríði Dögg en hún hafi hreint ekki látið hann slá sig út af laginu.

„Niðrun fjármálaráðherra gagnvart fréttakonunni Sigríði Dögg Auðunsdóttur, sem hann sakar um bæði heimsku og vanþekkingu og að skilja því alls ekki hvernig málið sé raunverulega vaxið - nokkuð sem hann sér öðrum betur - er skýrasta dæmi um karlrembu og gaslýsingu sem ég hef séð í háa herrans tíð. Skólabókardæmi, svo sorglegt og hneykslanlegt í senn,“ segir Ólína í færslu á Facebook og bætir svo við:

„Sigríður Dögg Auðunsdóttir lét ekki slá sig út af laginu. Ég tek ofan fyrir því.“

Fjörugar umræður hafa spunnist undir færslunni og eru flestir þeirrar skoðunar að Sigríður Dögg hafi einmitt staðið sig býsna vel í viðtalinu. Ein segir þó að hún sé frek, ágeng og jafnvel dónaleg en Ólína bendir þá á að hún sé föst fyrir og láti ekki vaða yfir sig með innihaldslausu blaðri.

„Hún er að sinna upplýsingaskyldu við almenning og gegnir því hlutverki vel,“ segir hún. Aðrir taka í svipaðan streng. „Sigríður Dögg stóð sig frábærlega. Langt síðan fréttamaður hefur fylgt spurningum svona vel eftir og ekki látið slá sig út af laginu,“ segir í einni athugasemd.