Ó­lína: Mál Bjarna próf­steinn á það hvort ís­lenskt sam­fé­lag sé sjúkt af með­virkni

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður og rithöfundur, segir að mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, sé prófsteinn á það hvort samfélag okkar sé sjúkt af meðvirkni.

Bjarni var sem kunnugt er við­staddur fjöl­mennan gleð­skap í Ás­mundar­sal á Þor­láks­messu þar sem sótt­varna­reglur voru ekki virtar. Bjarni baðst af­sökunar á að­fanga­dag en margir hafa kallað eftir af­sögn hans vegna málsins. Sjálfur segist Bjarni ekki vera að í­huga af­sögn.

Ó­lína tjáir sig um málið undir Face­book-færslu Ei­ríks Rögn­valds­sonar, fyrr­verandi prófessors í ís­lensku. Í at­huga­semd sagðist Ó­lína ekki trúa öðru en að málið fari á dag­skrá um leið og þing kemur saman. Annars sé stjórnar­and­staðan ekki starfi sínu vaxin. Hún bætti svo við:

„Þetta mál er að öllu leyti próf­steinn á það hvort sam­fé­lag okkar er hel­sjúkt af með­virkni, eða hvort hér finnst snefill af sið­ferðis­kröfu til þeirra stjórn­mála­manna sem valist hafa til á­byrgðar í um­boði al­mennings.“