Ó­lína kveður Skutul með hjart­næmum pistli: „Skutull var hóg­vær hetja. Sannur vinur og sálu­fé­lagi“

Ó­lína Kjer­úlf Þor­varðar­dóttir, fyrr­verandi þing­maður Sam­fylkingarinnar, skrifar hjart­næman pistil til hundsins síns á Face­book í dag.

„Skutull - hetjan litla, vinurinn trausti - er fallinn frá. Hann sofnaði á stofu­gólfinu hjá okkur í morgun eftir fjór­tán ára við­burða­ríka ævi. Skutull var að­eins 4ra mánaða þegar hann fór að fá þjálfun sem leitar og björgunar­hundur hjá Björgunar­hunda­sveit Ís­lands. Hans líf var helgað sam­fé­lags­þjónustu við leitar og björgunar­störf á vegum Lands­bjargar í 12 ár. Síðasta út­kallið sitt tók hann fyrir tveimur árum, 12 ára gamall. Nú er þjónustu hans lokið,“ skrifar Ó­lína.

Hún segist aldrei hafa kynnst betri eða vinnu­samari hundi en Skutli.

„Hann var ein­stak­lega ó­sér­hlífinn og næmur - hlífði sér aldrei, lagði sig alltaf allan fram. Sam­starf okkar var ó­skeikult alla tíð. Hann gerði mig betri, vissi alltaf hvernig mér leið, skildi mig og las eins og opna bók. Yfir­leitt þurfti ekki að leið­rétta hann nema einu sinni. Hann vissi t.d. alltaf hvar lóða­mörkin á húsinu mínu voru, og fór aldrei út fyrir þau þó að garðurinn væri girðingar­laus. Hann vissi alltaf hvernig best var að leita svæði og spurði mig orða­laust með augna­til­litinu hvort ég vildi að hann færi í þess áttina eða hina þegar við vorum að leita saman, gerði svo eins og ég vildi án þess að ég þyrfti að sýna honum það. Hann las hug minn,“ skrifar Ó­lína.

„Skutull var hóg­vær hetja. Sannur vinur og sálu­fé­lagi. Hann skilur eftir sig ó­metan­legar minningar um ævin­týri og sam­veru­stundir sem eiga engan sinn líka. Sælt er að hafa svo lifað. Hans verður sárt saknað,“ skrifar hún að lokum.