Ólína: „Hvar er nú reiði Víðis?“ – Gunnar Smári: „Hér eftir trúi ég engu sem mér er sagt“

„Það er ný­búið að herða reglurnar og gera 2ja metra fjar­lægð að skyldu. Leið­beininga­mynd­böndin hafa gengið mánuðum saman. Hvað er svona ó­ljóst við reglurnar? Svar: Ekkert.“

Þetta segir Ó­lína Þor­varðar­dóttir, fyrr­verandi þing­maður, í færslu á Face­book-síðu sinni.

Um fátt hefur verið meira rætt undan­farna tvo sólar­hringa en mynd sem birtist af Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í góðra vina hópi þar sem tveggja metra reglan var ekki virt.

Eina sem er óljóst eru svörin

Á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í gær sagði Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir að hann teldi að Þór­dís hefði ekki brotið reglur þegar hún var með vin­konum sínum. „Tveggja metra reglan á aðal­lega við um­gengni við ein­stak­linga sem maður þekkir engin deili á og passa sig í fjöl­menni,“ sagði Þór­ólfur á fundinum en bætti við að vissu­lega hefði ráð­herra getað passað sig betur.

Ó­lína segir að það eina sem er ó­ljóst séu svör Þór­ólfs á upp­lýsinga­fundinum.

„Hvers vegna? Jú vegna þess að einn ráð­herra gat ekki fylgt reglunum og nú er heil ríkis­stjórn á­samt sótt­varnar­teymi fallin í með­virkni með ráð­herranum. Fólk hefur þurft að fresta brúð­kaupum og fermingum - hætta við af­mælis­veislur og jarða ást­vini í kyrr­þey. Hvar er nú reiði Víðis?,“ spurði Ó­lína.

Breyta þarf upplýsingum

Í við­tali við RÚV í gær sagði Víðir Reynis­son yfir­lög­reglu­þjónn að breyta þurfi upp­lýsingum á vefnum CO­VID.is til að tryggja sam­ræmi milli þeirra upp­lýsinga sem koma þar fram og nýjustu aug­lýsingar heil­brigðis­ráð­herra. Á vef CO­VID.is kemur skýrt fram að hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi þurfi að hafa tvo metra á milli þeirra sem ekki deila heimili.

Í frétt RÚV var bent á að sam­kvæmt nýjustu aug­lýsingu heil­brigðis­ráð­herra um sam­komu­tak­markanir segi: „Á sam­komum, öllum vinnu­stöðum og í allri annarri starf­semi, m.a. þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga sem ekki deila heimili.“ Sagði Víðir að reglurnar væru ekki nógu skýrar og á dag­skrá væri að gera þær skýrari.

Undarleg kúvending

Miklar um­ræður hafa spunnist um þetta á sam­fé­lags­miðlum og sitt sýnist hverjum. Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins, deilir frétt RÚV sem vitnað er til hér að framan og segir:

„Var Þór­ólfur að breyta sótt­vörnum þannig að 2 metrar gilda bara milli ó­kunnugra? Þannig ef ég rekst á skóla­bróður minn úr tíma­kennslu í Mýrar­húsa­skóla á Lauga­veginum, má ég þá faðma hann? Þetta er undar­leg kú­vending, við höfum sleppt alls­konar út af co­vid; barna­af­mælum, út­förum, heim­sóknum. Þetta var þá bara allt einn mis­skilningur sem Þór­dís Kol­brún og æsku­vin­konurnar af­hjúpuðu; co­vid smitast ekki milli fólks sem þekkist. Ja hérna hér. Hér eftir trúi ég engu sem mér er sagt.“

Ólafur Teitur Guðna­son, að­stoðar­maður ferða­mála­ráð­herra, segir í at­huga­semd í þræði Gunnars að ekki sé verið að breyta neinum reglum heldur leið­rétta ó­sam­ræmi þar sem CO­VID-vefurinn er með strangara orða­lag en reglan sem sannar­lega gildir.

„Og Þór­ólfur var alveg skýr á því að það er ekki skil­yrðis­laus krafa á alla að hafa 2 metra á milli sín. Hann talaði um ó­tengda aðila og að það væri undir hverjum og einum komið að meta,“ sagði Ólafur Teitur.