„Ég las hana í einni lotu. Las hana svo aftur. Ég grét,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona, um bók Bryndísar Schram, brosað í gegnum tárin.
Ólína birtir hugleiðingar um bókina á Facebook-síðu sinni og segir hún að Bryndís hafi sýnt mikið hugrekki með skrifum sínum, enda opnar hún sig um erfiða og persónulega hluti.
„Hér lítur Bryndís yfir leiksvið lífs síns. Minningarnar grípur hún líkt og perlur upp úr litríkum sjóði, og raðar þeim á bandið sem lesandinn hefur fyrir augum í bókarlok. Sumar vekja gleði, aðrar sorg. Sumar glitra og lýsa frá sér. Aðrar eru eins og hyldjúpt myrkur. Bryndís ávarpar nefnilega sorgina ekki síður en gleðina í þessari bók,“ segir Ólína sem skrifaði með henni bókina Bryndís þegar hún var fimmtug, árið 1988.
Í færslu sinni skrifar Ólína sérstaklega um lokakafla bókarinnar en þar fjallar Bryndís um mál sem hafa verið í deiglunni að undanförnu.
„Í sögulok dregur ský fyrir sólu. „Fjölskylduharmleikur“ heitir sá hluti bókarinnar og varpar dimmum skugga á sviðið. Hann er erfið lesning. Fjallar um samband (og sambandsleysi) við elsta barnið, Aldísi. Foreldrarnir líklega of ungir þegar hún fæddist – barnið að mestu alið upp hjá ömmu og afa, og náði kannski aldrei að mynda eðlileg tengsl við móður sína. Tilfinningarofið sem af því hefur hlotist (og þetta er mín ályktun) verður með tímanum að lífsharmi þeirra allra. Ofan á þann harm bætist ótímabært fráfall dótturinnar Snæfríðar sem varð bráðkvödd í blóma lífsins,“ segir hún.
„Enginn er þess umkominn að tjá sig um slík örlög í lífi fólks – hvað þá að fella dóma, jafnvel ekki ritdóma. Eitt er þó víst að það þarf mikið hugrekki til að opna sig um svo viðkvæma hluti, leggja tilfinningar sínar á borðið og gera það af heiðarleika. Það hugrekki sýnir Bryndís – og það segir mikið um hana.
Þessi bók er mikil synfónía tilfinninga og reynslu. Og þrátt fyrir skugga og hret, er þetta óður til lífs og listar og gleði. Bros í gegnum tárin.“
Færslu Ólínu er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan:
Brosað í gegnum tárin – heitir þessi bók sem nú er nýkomin út, eftir Bryndísi Schram. Ég las hana í einni lotu. Las hana...
Posted by Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir on Fimmtudagur, 17. september 2020