Ólína furðar sig að mál Jóns Baldvins „hafi komist alla leið inn í réttarsal“

Ólína Þorvarðardóttir, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, furðar sig á því að áreitnismál Jóns Baldvins Hannibalssonar hafi yfirleitt ratað inn í réttarsal. Jón Baldvin var sýknaður í héraðsdómi í morgun af ákæru fyrir kynferðislega áreitni í garð Carmenar Jóhannsdóttur. Carmen sakaði Jón um að hafa strokið rass hennar í matarboði á heimili hans á Spáni í júní 2018.

Ólína segir: „Það sem ég furða mig á er að mál sem þetta skuli yfirleitt hafa komist alla leið inn í réttarsal íslenska dómskerfisins með öllum tilheyrandi kostnaði, tíma og tilfinningaþjáningu sem af hefur hlotist -- burtséð frá sekt eða sýknu en þó ekki síst í ljósi sýknunnar,“ segir hún á Facebook.

„Hvernig skyldi þeim nú líða brotaþolunum sem eftir raunveruleg kynferðisbrot hafa þurft frá að hverfa með ákærur sínar eða hafa mátt þola vantrú og áhugaleysi kerfisins eftir alvarlega atburði? Hvað skyldi því fólki finnast um að fjármunum almennings skuli ausið í mál af þessu tagi?“

Ólína var gagnrýnd fyrir skrif sín, svaraði hún: „Við erum sammála um að káf og þukl er ekki í lagi, um það er enginn ágreiningur og ekki láta eins og ég sé að mæla slíku bót. Spurningin hér er sú hvers vegna mál af þessu tagi fær svo mikla athygli og umfjöllun í kerfinu - hvers vegna verið sé að slóðadraga fólk á níræðisaldri í réttarsölum fyrir slíkar sakir - á meðan þolendur stærri brota hrökklast þaðan út.“