Ólína fengið nóg af nei­kvæðninni: „Þetta er ekki að hjálpa!“

„Er það með­vituð stefna að tala kjarkinn úr þjóðinni í kófinu? Að sökkva okkur niður í böl­móð og sjálfs­vor­kunn? Hver frétta­tíminn af öðrum undir­lagður af því að allt sé svo erfitt.“

Þetta segir Ó­lína Þor­varðar­dóttir, rit­höfundur og fyrr­verandi þing­kona, í færslu á Face­book-síðu sinni. Ó­lína virðist vera búin að fá sig full­sadda af nei­kvæðum fréttum sem hafa ein­kennt árið 2020. Hún segist hafa fengið alveg nóg eftir að hafa hlustað á há­degis­fréttir RÚV í gær, sunnu­dag.

Kórónu­veirufar­aldurinn hefur sett svip sinn á líf heims­byggðarinnar það sem af er ári og ekki er út­séð hve­nær far­aldurinn verður á bak og burt.

„Fé­lags­leg ein­angrun og van­líðan. Gamla fólkið er svo ein­mana. Börnum og ung­mennum líður svo illa. Al­menningur er orðinn svo þreyttur á á­standinu, o.s. frv., o.s. frv. Dag eftir dag dynja þessar fréttir á okkur með við­tölum og vanga­veltum um van­líðan al­mennings,“ segir Ó­lína sem heldur á­fram:

„Þetta er ekki að hjálpa! Frétta­stofurnar verða að fara að finna eitt­hvað annað til að tönnlast á. Við vitum öll að kófið er ekki skemmti­legt - það þarf ekki að segja okkur það. Við vitum öll af okkar ættingjum, ungum og öldnum, að við söknum þess að knúsa og kyssa. Halló!

Þetta eru samt ekki raun­veru­legir erfið­leikar. Þetta er bara leiðin­legt meðan á þessu stendur, en það líður hjá - við verðum að trúa því og þruma þetta af okkur. Sjálfs­vor­kunn og eymdar­væl gagnast engum.“

Ó­lína endar færslu sína á þessum orðum:

„PS: Ég hef miklu meiri á­hyggjur af af­komu þeirra þúsunda Ís­lendinga sem misst hafa vinnu og tekjur með til­heyrandi vanda og van­líðan - heldur en fólki sem þarf að láta sér leiðast heima. Grrrr ...“