Ólína fagnar því að Eurovision-hópurinn hafi verið bólusettur

Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur og fyrrverandi þingmaður, segist ekki furða sig á því að íslenski Eurovision-hópurinn hafi fengið bólusetningu áður en hann hélt til Hollands.

Nokkur umræða skapaðist í gær eftir að greint var frá því að Daði og Gagnamagnið, fulltrúar Íslands í Eurovision þetta árið, hefðu fengið forgang í bólusetningu umfram aðra hópa. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði að beiðni hefði komið frá RÚV um bólusetninguna og ákveðið hefði verið að verða við henni. Áður hafði Þórólfur sagt að erfitt væri að veita undanþágu fyrir einstaka hópa fólks.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, var í hópi þeirra sem gagnrýndu þetta harðlega í gær. „Furðulegt að hleypa þeim fram fyrir. Enn eru dæmi um fólk með undirliggjandi sjúkdóma sem ekki hafa fengið bólusetningu og þá er þetta júróvísjón sett í forgang. Ætli að séu fleiri skemmtikraftar sem geta fengið undanþágu ? Hvað með þá sem þurfa erlendis vegna vinnu eða að sinna veikindum í fjölskyldu? Fá þeir forgang,“ spurði Gunnar Bragi á Facebook-síðu sinni.

Ólína er ekki á sama máli og fagnar hún í raun bólusetningu hópsins.

„Ég furða mig ekkert á bólusetningu Júróvisjón-hópsins. Mér finnst hún alveg sjálfsögð þegar um er að ræða hóp sem sendur er sem landkynning til annars lands þar sem COVID19 hætta er veruleg. Það sem ég furða mig á er að þau skuli ekki hafa verið bólusett fyrr (tíu dagar eru ekki nægur tími til að mynda vörn). Af hverju voru þau ekki bólusett í tæka tíð þannig að hópurinn hefði raunverulega vörn og væri nokkurnveginn öruggur við störf sín og landkynningu þarna úti? Það langar mig að vita,“ segir Ólína á Facebook-síðu sinni.