„Það er þrautleiðinlegt að verða fyrir áreiti fólks bara vegna þess að fólk kannast við mann úr fjölmiðlum,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður í færslu á Facebook.
Í færslunni segir Ólína frá hvernig hún varð fyrir áreiti á göngu sinni fyrir ofan Rauðavatn fyrr í dag.
Ólína hafði verið í göngu með manninum sínum, þau hafi verið að viðra hund sem tilheyrir fjölskyldunni, á hundasvæðinu fyrir ofan Rauðavatn. „Eins og margir vita er þetta svæði nánast eina svæðið í Reykjavík þar sem fólk getur verið með lausa hunda,“ segir Ólína.
Hún bendir á að í auknum mæli hafi það færst í aukana að hjólreiðafólk leggi leið sína þangað einnig.
„Það kunna þó fleiri að meta svæðið, því hjólreiðafólk er í auknum mæli farið að leggja leið sína þangað þó að stígarnir séu alls ekki ætlaðir til hjólreiða. Raunar liggja þeir undir skemmdum í rigningum, haust og vor vegna hjólreiðanna, enda eru þetta moldarstígar,“ segir Ólína.
Þau hjón hafi gengið fram á hóp hjólreiðafólks sem hafði komið sé sitthvorum megin við göngustíginn og því hafi þau þurft að ganga í gegnum hópinn. Þau heilsuðu hópnum, en önnur konan í hópnum veittist því að þeim fyrir að vera með lausan hund.
Konan spyr hvort leyfilegt sé að vera með hunda í lausagöngu, sem Ólína svara játandi og spurði konuna til baka hvort stígarnir væru ætlaðir til hjólreiða.
„Umturnaðist konan þarna í sólskininu. Henni líkaði sumsé ekki svarið og taldi sig nú þess umkomna að hella yfir mig fúkyrðum og svívirðingum - persónulegum altso. Þekki ég þó hvorki haus né sporð á þessari manneskju en hún vissi greinilega hver ég var,“ segir Ólína.
Ólína og eiginmaður hennar stöldruðu ekki lengi við og gengu í burtu og báðu konuna að eiga góðan dag.
„En ekki þú,“ svaraði konan þegar Ólína gekk í burtu.
„Það er mér hulin ráðgáta þessi árátta sumra að áreita fólk, bara af því það kannast við persónuna úr fjölmiðlum. Ég verð sem betur fer ekki oft fyrir þessu, en það er jafn hundleiðinlegt þegar það gerist,“ segir Ólína og bætir við að slík séu viðhorfin almennt gagnvart hundafólki.
„Því það er einhver plagsiður á Íslandi að álíta fólk með hunda gjörsamlega réttlaust hvar sem það kemur,“ segir Ólína, sem segist ekki hafa húmor fyrir þessu.
Lesa má færslu Ólínu í heild sinni hér að neðan: