Ó­lína ætlar ekki að taka sénsinn: „Þetta er ekki lekker til­hugsun“

Ó­lína Þor­varðar­dóttir, doktor í þjóð­hátta­fræði og fyrr­verandi þing­kona, segist ekki ætla að taka á­hættuna af því að fara í sund í því á­standi sem nú ríkir.

Ný reglu­gerð heil­brigðis­ráð­herra tekur gildi á mið­nætti og felur hún meðal annars í sér að heimilt verður að opna sund- og bað­staði. Verður heimilt að hafa opið fyrir allt að 50% af há­marks­fjölda gesta sam­kvæmt starfs­leyfi. Ó­línu lýst ekki á blikuna og ætlar að bíða með að fara í sund.

„Ég er að hugsa um þetta með sund­laugarnar. Að mæta á­samt fjölda fólks (allt að 350 manns) í sund­laugarnar og stinga sér ofan í vatnið þar sem hugsan­lega smitað fólk er líka að svamla, blása frá sér og svitna í sama vatnið og leikur um mig ... fara svo í pottinn þar sem fólk svitnar enn meira og andar út í gufuna hugsan­legum kórónu­veirum ... þetta er ekki lekker til­hugsun. Ég ætla að bíða með þetta,“ segir hún á Face­book-síðu sinni.

Um­mæli hennar ríma á­gæt­lega við um­mæli Kára Stefáns­sonar, for­stjóra Ís­lenskrar erfða­greiningar, í Kast­ljósi í gær­kvöldi þar sem hann klóraði sér í kollinum yfir opnun sund­staða. Hann telur það ó­ráð­legt.

„Til dæmis að hleypa 350 manns á sama tíma í Laugar­dals­laugina, ég skil ekki hvað að baki því býr. Hvaðan fá menn þá vit­neskju að þessi veira berist ekki á milli manna í sundi? Það hlýtur ein­hver að hafa vitjað sótt­varna­lækniss í draumi og sagt honum þetta, því hvergi annars staðar fær hann þetta,“ sagði Kári meðal annars.