„Á þinginu starfa nokkrar veikburða stjórnmálahreyfingar sem telja sig hafa fengið köllun, sennilega að handan, í það starf að auka virðingu þess. Hafa þessir útvöldu stjórnmálamenn beitt þeirri aðferð sem stundum er kölluð öfug sálfræði, sem felst í því að vera illa til hafður í alla staði og hafa stór orð um óheiðarleika og mannvonsku andstæðinga þeirra, sem geri lítið annað en að misfara með vald sitt.“
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer hörðum orðum um ónefndar stjórnmálahreyfingar á Alþingi í pistli sem birtist í Viðskiptablaðinu.
„Efast má um að þessi málflutningur auki virðingu þingsins. Þá þykir mörgum ólíklegt að þessi daglega drusluganga í þingsal auki virðingu þingsins.“
Brynjar segir ástæðulaust að ætla annað en að stjórnmálamönnum sé almennt umhugað um hag þjóðarinnar. Orka þingmanna eigi að fara í að takast á um álitamál sem varði skipti þjóðina máli.
„Í stað þess að takast á um hugmyndir og framtíðarsýn er stöðugt sáð tortryggni og alið á öfund og neikvæðni.“
Tali í innihaldslausum frösum
Hann segir stjórnmálamenn einhvern veginn vera svífandi um í lausu lofti og tala gjarnan í innihaldslausum frösum.
„Algengir frasar sumra þeirra snúast um að andstæðingar þeirra séu í sérhagsmunagæslu og skorti alla manngæsku meðan þau sjálf berjist fyrir almannahag, uppfull af manngæsku, sem sumum kann þó örugglega að finnast kæfandi í meira lagi.“
Með sýndarmennsku geti stjórnmálamenn fengið góð viðbrögð á samfélagsmiðlum en virðing og traust aukist ekki að sama skapi.
„Framkoma stjórnmálamanna, meðal annars í klæðaburði og talsmáta, skiptir einnig máli, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Á því sviði gætu nokkrir stjórnmálamenn bætt sig án mikillar fyrirhafnar og verða þeir ekki nefndir á nafn í þessum pistli.“