Óli Björn ó­sáttur: Færð það ó­þvegið ef þú leyfir þér að efast – „Þráðurinn stöðugt styttri“

„Þráðurinn verður stöðugt styttri. Um­burðar­lyndi og þolin­mæði eiga í vök að verjast. Stjórn­mála­menn, al­menningur og fjöl­miðla­menn fella dóma yfir mönnum og mál­efnum án þess að hika,“ segir Óli Björn Kára­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, í grein sinni í Morgun­blaðinu í dag.

Þar skrifar Óli Björn um orð­ræðuna hér á landi en til­efnið er væntan­lega býsna hörð við­brögð sem Brynjar Níels­son, sam­flokks­maður Óla Björns, fékk eftir að hann viðraði á­hyggjur sínar af að­gerðum yfir­valda í bar­áttunni gegn út­breiðslu CO­VID-19.

Óli Björn segir að við­brögð sem þessi séu ekkert eins­dæmi.

„Tungu­takið er harðara en áður, stundum ofsa­fengið og sví­virði­legt. Hjólað er af hörku í ein­stak­linga sem varpa fram öðrum sjónar­miðum – hafa aðra sýn á hlutina. Sam­fé­lag sam­tímans refsar um­svifa­laust. Litli drengurinn sem af hrein­skilni benti á að keisarinn væri ekki í neinum fötum hefði verið smánaður á sam­fé­lags­miðlum,“ segir Óli Björn í grein sinni og bætir við að óþol sam­tímans veiti fáum grið. Hann heldur á­fram:

„Þegar ráð­herra kemst klaufa­lega að orði nýta sam­verka­menn í öðrum ríkis­stjórnar­flokki tæki­færið og ráðast á hann með ó­svífni þess sem óttast dapurt gengi þegar innan við eitt ár er í kosningar. Út­úr­snúningur og orð­hengils­háttur yfir­tekur dreng­skap og lítið er gefið fyrir sam­vinnu og traust ó­líkra flokka sem standa að ríkis­stjórn á erfiðum tímum. Pólitískur hrá­skinna­leikur tekur yfir orð­ræðuna líkt og oft gerist þegar stjórn­mála­menn lítilla sanda og lítilla sæva reyna að gera sig gildandi á kostnað annarra,“ segir Óli Björn sem talar svo um mál Brynjars án þess þó að nefna hann bein­línis á nafn.

„Þing­maður, sem leyfir sér að efast opin­ber­lega um hertar að­gerðir þar sem gengið er frek­lega á borgara­leg réttindi í al­var­legri bar­áttu við kórónu­veiruna, fær það ó­þvegið á sam­fé­lags­miðlum, í fjöl­miðlum og tölvu­póstum. Innan heil­brigðis­kerfisins spila sumir undir. Þing­manninum eru gerðar upp skoðanir og hann sakaður um mann­fyrir­litningu og skort á sam­kennd,“ segir Óli Björn og bætir við að þing­maðurinn hafi ekki gert annað en að spyrja spurninga og benda á að hertar að­gerðir, þar sem við­skipta­lífið er að stórum hluta lamað, hafi af­leiðingar sem nauð­syn­legt er að ræða.

„Af­leiðingar fyrir al­menna heilsu þjóðarinnar en ekki síður fyrir vel­ferðar­kerfið allt geti orðið al­var­legar, þar sem hægt og bítandi er dregið úr sam­eigin­legum þrótti okkar (ríkis­sjóði) til að standa undir öflugu heil­brigðis­kerfi, mennta­kerfi og al­manna­tryggingum.“

Grein Óla Björns má lesa í heild sinni í Morgun­blaðinu í dag.