Ólga hjá Vinstri Grænum: Lilja hjólar í Svandísi og efast um að hún og flokkurinn eigi ennþá samleið

Ólgan eykst hjá Vinstri grænum þessa stundina, en Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður flokksins, segist efins um að hún eigi ennþá samleið með flokknum.

Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni, en ástæðan er sú að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi í haust er varðar svæðaskiptingu á kvóta strandveiða.

„Í stað þess að tryggja nægar aflaheimildir í Strandveiðikerfið í 48 daga á öllu landinu kýs ráðherra að brjóta niður núverandi kerfi sem mikil þverpólitísk vinna var lögð í og markmiðið var að tryggja aflaheimildir í þessar umhverfisvænu og sjálfbæru veiðar sem efla sjávarbyggðir landsins!“ skrifar Lilja sem kallar ákvörðun ráðherra illa ígrundaða og þvert á stefnu Vinstri grænna.

„Ég er hugsi yfir því hvort ég eigi samleið með Vinstri grænum lengur þegar svo illa ígrundaðar ákvarðanir eru gerðar án samráðs þvert á stefnu VG um að efla Strandveiðar!“