Olga Björt Þórðardóttir, ritstýra og fyrrum fegurðardrottning, birtir blaðagreina á twitter síðu sinni í dag frá árinu 1990 er hún var valin fegurðardrottning Suðurnesja.
Olga hefur skrifað mikið um ofbeldi og kvíða síðustu árum en í grein frá því í fyrra sagðihún meðal annars: „Eftir að ég fór markvisst að gera upp fortíð mína fyrir þó nokkrum árum með hjálp góðra sérfræðinga hefur mér þó nokkrum sinnum verið tjáð að oft erfist áföll á milli kynslóða,“ segir Olga Björt Þórðardóttir ritstjóri í aðsendri grein á Vísir.is. „Þá er t.d. átt við að slæm reynsla sem bæld hefur verið niður eða þögguð, „gleymst“ og aldrei opnað á né unnið í, finnur sér ávallt einhvern farveg, s.s í samskiptum, líðan og jafnvel skertum lífsgæðum og heilsu þeirra sem eiga í hlut. Kvíði er t.d. mjög algengur arfur.“
Í dag skrifar hún skilaboð til ungu stelpunnar á myndinni.
„Draumurinn sem varð að martröð. Í dag faðma ég þessa ringluðu stelpu þétt að mér og þakka henni fyrir að vera mikilvægur hluti af mér. Hún sýndi ótrúlegt æðruleysi í miklu mótlæti og árum sem einkenndust af allskonar ofbeldi. Ég elska hana,“ skrifar Olga.
Draumurinn sem varð að martröð. Í dag faðma ég þessa ringluðu stelpu þétt að mér og þakka henni fyrir að vera mikilvægur hluti af mér. Hún sýndi ótrúlegt æðruleysi í miklu mótlæti og árum sem einkenndust af allskonar ofbeldi. Ég elska hana. ❤️ pic.twitter.com/hzLxVepou6
— Olga Björt (@olgabjort72) February 16, 2023