Ole Anton fékk það óþvegið: „Hafi ég sært einhverja biðst ég fyrirgefningar á því“

Ole Anton Bieltvedt, samfélagsrýnir, dýraverndunarsinni og pistlahöfundur, segist hafa fengið skammir í hattinn eftir umdeildan pistil sem hann skrifaði í Fréttablaðið í síðustu viku.

Hringbraut gerði pistlinum skil en í honum viðraði Ole þá skoðun sína að hinsegin fólki sé hampað of mikið. Benti hann á regnbogafána sem blakta víða þessar vikurnar máli sínu til stuðnings og velti fyrir sér hvers vegna öðrum hópum sé ekki gert jafn hátt undir höfði, til dæmis örvhentum, smávöxnum eða hávöxnum.

Gleðin stundum yfirkeyrð

Ole segist í pistli sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag hafa viljað koma nokkrum atriðum til skila.

„1. Að mér fyndist „gleði“ hinsegin fólks stundum yfirkeyrð. 2. Að ég liti á hinsegin fólk og trans fólk nákvæmlega eins og á alla aðra samfélagshópa; eins og okkur hin.“

Ole útskýrir að hann hafi víða fengið skömm í hattinn fyrir greinina og verið sakaður um að gera árás á hinsegin fólk og grafa undan réttindabaráttu þess. Sérstaklega hafi hann verið gagnrýndur fyrir að skilja ekki vilja hinsegin fólks og trans fólks til að vera sýnileg.

Myndi ráðleggja þetta

„Góð og gegn kona skrifaði mér, þegar ég sagði, að erfitt væri að rökræða við fólk, sem stjórnaðist af tilfinningum eða samúð: „Ómögulegt að rökræða við þig um þá tilfinningu þína að hinsegin fólk sé of sýnilegt.“ Hún taldi það, sem sagt, mikilvægt fyrir hinsegin fólk að vera „sýnilegt“.

Ole segist hafa svarað því þannig, að ef hann væri ráðgjafi hinsegin fólks, myndi hann ráðleggja þeim þetta:

„Forðist, að vera of sýnileg, láta of mikið á ykkur bera og berjið bumbur ykkar hóflega. Því, með slíku eruð þið sjálf að skera ykkur úr, gera ykkur að sérstökum hópi. Leggið heldur áherzlu á, að ganga inn í samfélagið og sameinast því, með hljóðlegum og mjúkum hætti, renna inn í það án hávaða og láta, en standið þó fast á rétti ykkar, ef/þegar á hann reynir.“

Þetta var ekki eina erindið sem Ole fékk.

„Önnur góð kona sagðist ekki skilja mína nálgun; hvað ég væri að fara með þessum skrifum. Svarið er, að ég tel hinsegin fólk bara venjulegt fólk, og sé enga ástæðu til að vera að hampa því sérstaklega. Nær hefði t.a.m. verið fyrir Reykjavíkurborg að byggja fleiri rampa fyrir hjólastólafólk, en að mála götur og stræti hinsegin fólki til heiðurs.“

Biðst afsökunar hafi hann sært einhvern

Ole Anton segir að þegar samfélagið er skoðað megi greina marga hópa sem allir hafa sín sérkenni vegna sinna erfðamengja og gena en eiga samt fullan rétt á að falla inn í samfélagið og vera fullgildir samfélagsþegnar.

„Það er ekkert réttlæti í því, að taka þarna einn hóp út úr og hampa honum sérstaklega af opinberum aðilum, sveitarstjórnum, skólum, kirkjum, fyrirtækjum o.s.frv. Sérstaklega finnst mér réttur opinberra aðila til þessa orka tvímælis,“ segir Ole Anton sem endar grein sína á þessum orðum:

„Til að svara því, hvað mér gangi til með þessum skrifum, þá eru punktarnir þessir: 1. Að sýna fram á, að hinsegin fólk og trans fólk er eins og við hin. 2. Það verður að gilda jafnvægi og jafnrétti milli allra hópa. 3. Hinsegin fólk er ekki að styrkja sína stöðu með því að vilja vera „sýnilegt“. 4. Kynferðislegir tilburðir hinsegin fólks í gleðigöngum og öðru eiga ekki við. 5. Kynferðismál ættu að vera einkamál manna.

Við lifum sem betur fer í frjálsu samfélagi, þar sem allir hafa rétt á að hafa skoðun og tjá hana. Ég er að nýta mér þann rétt, eins og ég geri oft, og vona ég, að menn geti metið þetta innlegg í umræðuna út frá skynsemi og yfirvegun, en láti ekki stjórnast af tilfinningasemi eða ógrundaðri samúð.

Hafi ég sært einhverja með þessum hugleiðingum mínum og skrifum, þá biðst ég fyrirgefningar á því.“