Öldruð móðir Jóhönnu kastaðist úr hjólastólnum við Landspítalann

„Hún slapp við að brotna, Guði sé lof, en það hefði ekki mikið þurft til,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir í samtali við Hringbraut. Öldruð móðir Jóhönnu má teljast heppin að hafa ekki slasast alvarlega þegar hún kastaðist úr hjólastól fyrir framan Landspítalann í síðustu viku.

Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér marðist hún illa og hefur verið talsvert eftir sig eftir slysið. Jóhanna segir að nýlegum framkvæmdum fyrir framan aðalinngang Landspítalans í Fossvogi megi kenna um slysið og segir hún aðkomuna ekki hreinlega boðlega fyrir hreyfihamlaða.

„Það eru greinilega búnar að vera framkvæmdir og breytingar við innganginn við fyrstu hæð á Borgarspítalanum og aðgangur fyrir fatlaða er bara til háborinnar skammar. Það er búið að setja niður einhverja stólpa til að koma í veg fyrir að fólk geti keyrt þarna niður til að koma fólki að húsinu. Svo er búið að setja einhverjar hellur þarna,“ segir Jóhanna.

Slysið varð einmitt með þeim hætti að þegar verið var að ýta móður hennar í hjólastólnum festust litlu hjólin framan á stólnum í einhverskonar hellu, eða hindrun, á gangstéttinni. Það varð til þess að hún kastaðist fram fyrir sig og lenti illa eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Móðir hennar slapp þó sem betur fer við alvarlega áverka en ljóst má vera að verr hefði getað farið hefði hún til dæmis lent á höfðinu.

Jóhanna bendir á að aðeins fjögur stæði fyrir fatlaða séu fyrir framan spítalann og þau séu jafnan full. Að loka fyrir aðgengi fyrir framan spítalann sé glórulaust enda margir fatlaðir og hreyfihamlaðir sem þurfa að nýta sér þjónustu spítalans. „Þetta er aðalæðin á spítalann, fyrir utan þá sem leita á slysadeild, og þetta er til skammar enda allra veðra von á Íslandi,“ segir hún en slysið varð þann 10. mars síðastliðinn og var nokkuð vindasamt í höfuðborginni þann dag.

Jóhanna segir að þær mæðgur hefðu látið spítalann vita en ólíklegt sé að einhverju verði breytt. „Ég hef talað við fólk sem vinnur á spítalanum og því finnst þetta fyrir neðan allar hellur að hægt sé að bjóða upp á þetta.“