Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og þingmaður Miðflokksins, segir að kominn sé tími á að framkvæmdir við nýja Sundabraut verði settar í forgang hér á landi. Þá þurfi að hverfa frá hinni fokdýru borgarlínu og fara þess í stað ódýrari leið sem lögð er til í tillögum Áhugafólks um samgöngur fyrir alla (ÁS).
Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein eftir Ólaf sem birtist á vef Vísis í morgun.
„Teppurnar í umferðinni má rekja til ákvarðana stjórnvalda. Síðustu tíu árin hefur ríkt stöðvun á framkvæmdum í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ólafur og bætir við að þetta megi rekja til samkomulags sem gert var á sínum tíma um að veita engu fé til framkvæmda í Reykjavík heldur auka fé til almenningssamgangna í viðleitni til að auka hlutdeild þeirra í ferðum innan höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að árangurinn af þessu sé minni en enginn.
„Hlutfall ferða með Strætó hefur haldist fast í 4%. Langvinn stöðvun á framkvæmdum birtist í umferðarteppum, tíma sem fer til spillis, sóun á eldsneyti og aukinni mengun.“
Ólafur segir að með samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, frá september 2019 hafi tekist að brjótast úr viðjum framkvæmdastoppsins og leggja drög að framkvæmdum í samgöngumálum næstu 15 árin.
„Margt ágætt er að finna í framkvæmdaáætlun samkomulagsins en sá galli er á gjöf Njarðar að um leið og borgarlínan fær þar þungt vægi er Sundabraut ekki talin upp á framkvæmdalistanum. Borgarlínan reyndist lausnargjaldið til að binda endi á tíu ára stöðvun í samgönguframkvæmdum.“
Ólafur segir að tillögur ÁS um létta útgáfu til að bæta almenningssamgöngur séu allrar athygli verðar. Hópurinn hafi umferðarverkfræðinga og aðra kunnáttumenn innan sinna raða sem leggja til að sérakreinar verði hægra megin við akbrautir á þeim köflum þar sem eru langar biðraðir bíla á álagstímum. Kostnaður við þetta sé metinn á 20 milljarða króna borið saman við a.m.k. 100 milljarða króna kostnað við borgarlínu.
„Óverjandi væri að kasta 80 milljörðum króna á glæ en það er hinn áætlaði munur á kostnaði við borgarlínu og léttri útgáfu áhugahópsins,“ segir Ólafur og vill meina að þessi nýju viðhorf kalli á endurskoðun á samgöngusáttmálanum.
„Meginatriðið í því efni er að hverfa frá hinni fokdýru hugmynd um borgarlínu fyrir mun ódýrari útgáfu og setja Sundabraut í forgang með þeim krafti sem hæfir því verkefni,“ segir hann og bætir við að Sundabrautin verði mikil samgöngubót fyrir allt landið.
„Ljóst er að Sundabrautin greiðir leið milli höfuðborgarsvæðisins og Vestur- og Norðurlands. Hún styttir leiðina á Kjalarnes sem samþykkti sameiningu við Reykjavík með áskilnaði um Sundabraut. Hún dregur úr álagi á Ártúnsbrekku og kemur þannig til góða íbúum í Grafarvogi og Grafarholti sem nú verða harkalega fyrir áhrifum framkvæmdastoppsins. Allt mælir með framkvæmdum við Sundabraut sem dregist hafa of lengi,“ segir hann.