Ólafur vill sjá Kópa­vog gera meira: „Við getum tekið upp sam­skipti við úkraínskar borgir og bæi, gert þær að vina­bæjum okkar“

„Stríðið í Úkraínu hefur fært okkur á­takan­legar myndir af þjáningum venju­legs fólks, ná­granna okkar, sem hafa orðið að þola ó­lýsan­legar hörmungar,“ skrifar Ólafur Þór Gunnars­son, odd­viti VG í Kópa­vogi, í að­sendri greiná Vísi.

„Dag eftir dag fáum við fréttir af á­rásum á í­búða­hverfi, skóla, heil­brigðis­stofnanir, menningar­stofnanir og aðra inn­viði, fæsta hernaðar­legs eðlis,“ bætir hann við.

„Við, her­laus frið­elskandi þjóð, eigum kannski erfitt með að skilja hverjum dettur í hug að leysa vanda­mál sín með því að skjóta á ná­grannann, en það er sá raun­veru­leiki sem á­rásar­liðið reynir að selja heiminum. En við verðum að bregðast við. Með þeim hætti sem við kunnum og getum. Við getum opnað dyr fyrir flótta­fólk, tekið á móti því. Við getum tekið upp sam­skipti við úkraínskar borgir og bæi, gert þær að vina­bæjum okkar hér á Ís­landi. Þannig getur Kópa­vogur komið á sam­skiptum við næst stærstu borgina í Úkraínu, Kharkiv, og önnur sveitar­fé­lög boðið sam­bæri­leg sam­skipti við aðrar borgir og bæi.“

Ólafur segir ljóst að Ís­land geti ekki tekið á móti öllum í­búum Úkraínu.

„En við getum búið til pláss fyrir þau í hugum okkar, með sam­skiptum og hvatningu, fjár­stuðningi og annarri að­stoð. Þannig færum við þau nær okkur, og setjum okkur þau verk­efni að láta þau okkur varða með beinum hætti. Við eigum líka að taka á móti fólki frá Úkraínu og það á að vera metnaður sveitar­fé­laganna að gera það vel. Þannig sendum við skýr skila­boð til Úkraínu og alls heimsins að okkur er ekki sama og að við viljum gera það sem við getum til að hjálpa,“ skrifar Ólafur að lokum.