Ólafur vill gjaldtöku í Geldingadölum – Ekki eftir neinu að bíða

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að það sé ekki eftir neinu að bíða varðandi gjaldtöku til að skoða eldgosið í Geldingadölum.

Gríðarleg ásókn hefur verið að gossvæðinu að undanförnu og hafa björgunarsveitarmenn og lögregla haft í nógu að snúast undanfarna daga. Þúsundir manna hafa lagt leið sína á svæðið.

Nokkur umræða hefur verið um hugsanlega gjaldtöku að svæðinu og ljóst að sitt sýnist hverjum. Ólafur, sem skoðaði gosstöðvarnar á dögunum, er þó þeirrar skoðunar að taka eigi gjald af fólki.

„Mér finnst það vera einfalt mál og að það eigi að drífa í gjaldtöku,“ segir hann við Fréttablaðið í dag og bætir við:

„Hvort sem það er þessi náttúruperla eða einhver önnur þá kostar peninga að leggja stíga, vera með gæslu, setja upp merkingar og svo framvegis. Það er miklu eðlilegra að þeir sem njóta náttúrunnar á þessum stað borgi fyrir það en það sé fjármagnað af skattfé sem er síðan alltaf of naumt skammtað.“