Ólafur Stephensen, formaður Félags atvinnurekenda, vill að í stjórnarmyndunarviðræðum þeirrar Katrínar Jakobsdóttur, Sigurðar Inga Jóhannsonar og Bjarna Benediktssonar verði rætt af alvöru um stöðuna sem nú er uppi á áfengismarkaði á Íslandi.
„Þetta ætti að vera eitt af umræðuefnunum við borðið þar sem nú er rætt um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Áfengisframleiðsla á Íslandi er til dæmis einn af líflegustu og áhugaverðustu vaxtarbroddunum í íslenzkum matvælaiðnaði og ferðaþjónustu, sem stjórnarflokkarnir segjast vilja styðja. Það er ekki hægt að búa þeirri grein jafnóskýrt og -þversagnakennt rekstrarumhverfi og hér hefur verið lýst,“ skrifar Ólafur í aðsendri grein á Vísi í dag með yfirskriftinni „Tækifæri til að koma viti í áfengismarkaðinn“.
„Félag atvinnurekenda hefur að undanförnu ítrekað vakið athygli á furðulegri stöðu, óvissu og þversögnum, sem uppi eru á áfengismarkaðnum á Íslandi. Nú þegar stjórnarflokkarnir sitja og ræða áframhaldandi samstarf er frábært tækifæri til að leggja drög að því að koma viti í þennan markað. Löggjöf um áfengisviðskipti þarf að endurspegla nútímalega viðskiptahætti, tryggja jafnræði og eyða óvissu. Til þess þarf heildarendurskoðun á henni, eins og FA hefur ítrekað hvatt til og í fyrsta sinn virðast stjórnvöld til viðtals um slíka endurskoðun.“
Hann segir óvissuástand ríkja á markaðnum en óskýr svör hafi borist frá stjórnvöldum. Félagið sendi erindi til dómsmálaráðuneytisins og fékk svar um átta vikum síðar sem hann segir ekki verið ýkja skýrt. „Óvissan er því áfram til staðar.“